amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Föstudagurinn 12. mars 2010 - 02:35
 
Frétt birtist 26. september 2009 klukkan 09:23

Rannsóknarefni hvernig „Baugsmiðlar“ halda velli

 
 
 
 
Eftir Einar Kristinn Guðfinnsson Pistill

Aldrei brugðist vondum málstað

Þórólfur Matthíasson prófessor kvartar undan því að vera sagður ganga erinda erlendra þjóða. Þarna er prófessorinn að vísa til þess að Eva Joly ráðgjafi sérstaks saksóknara í bankahruninu skrifaði harðorða grein í Morgunblaðið og Aftenposten í Noregi til þess að svara dæmalaust vitlausri grein eftir prófessorinn í síðar­nefnda blaðinu.

 
Mest lesið
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Höfuðstöðvar 365 við Skaftahlíð í Reykjavík.

Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra og þingmaður, segir það sérstakt rannsóknarefni hvernig „Baugsmiðlarnir“ halda velli nú þegar Baugsveldið sé hrunið. Hann varpar fram þeirri spurningu hvort það heyri undir Fjármálaeftirlitið, rannsóknarnefnd alþingis eða sérstakan saksóknara.

Þetta kemur fram á heimasíðu Björns, en hann hefur lengi rætt um fjölmiðla sem eru í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og tengdra aðila sem Baugsmiðla. Orðrétt segir Björn í þessu sambandi:

„Baugsmiðlarnir hafa verið, eru og verða málpípur Bónusfjölskyldunnar og vina hennar. Hvernig þeir halda velli, þegar Baugsveldið er hrunið, er rannsóknarefni. Fjármálaeftirlitsins? Rannsóknarnefndar alþingis? Sérstaks saksóknara?“

Björn bendir á að dagblöð berjist víða í bökkum og þeim fækki óðum einkum í Bandaríkjunum. Þá rifjar hann upp að Nyhedsavisen, sem Gunnar Smári Egilsson hleypti af stokkunum í Danmörku í nafni Baugs, hafi farið í þrot og stórfé tapaðist:

„Danskir blaðaútgefendur þurftu að taka á honum stóra sínum til að blöð þeirra héldu lífi. Er enn mikil óvissa í dönskum blaðaheimi.“

 
Fleiri fréttir

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Jónas Fr. vísar ásökunum um lygar starfsmanna FME á bug

Starfsmenn Fjármála­eftirlitins gáfu þær upplýsingar um fjárhag Landsbankans sem þeir töldu réttar hverju sinni byggðar á fyrirliggjandi gögnum frá bankanum og hálfsársuppgjöri 2008, árituðu af endurskoðendum bankans. Ásökunum um lygar starfsmanna Fjármála­eftirlitsins er vísað á bug, segir í yfirlýsingu Jónasar Fr. Jónssonar, fv. for­stjóra Fjármála­eftirlitsins.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2010 Straumröst ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX