amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Föstudagurinn 3. september 2010 - 13:08
 
Frétt birtist 19. september 2009 klukkan 17:59

Ríkisskatt­stjóri heimilar Jóni Jósef aðgang að gagnagrunni fyrirtækjaskrár

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Jón Jósef Bjarnason, forráðamaður IT Ráðgjafar- og hugbúnaðarþjónustunnar ehf., fær á næstunni aðgang að gagnagrunni fyrirtækjaskrár. Þetta er ákvörðun ríkisskattstjóra eftir að fyrir liggur að Persónuvernd gerir ekki athugasamdir við aðganginn að gögnunum.

Í tilkynningu ríkisskattstjóra segir:

„Að undanförnu hefur verið til umfjöllunar á opinberum vettvangi ósk forráðamanns IT Ráðgjafar- og hugbúnaðarþjónustu ehf. um að fá aðgang að gagnagrunni fyrirtækjaskrár. Ríkisskattstjóri taldi nauðsynlegt m.t.t. eðli gagnagrunnsins og fyrirhugaðar starfsemi, að afstaða Persónuverndar þyrfti að liggja fyrir.

Nú þegar afstaða Persónuverndar er ljós ætti ekkert að vera því til fyrirstöðu að forráðamaður hlutaðeigandi félags fái umbeðinn aðgang að uppfylltum viðeigandi öryggis- og formkröfum. Reiknað er með að unnt verði að ganga frá því á næstu dögum og skráin þá gerð aðgengileg.

Þá vill ríkisskattstjóri taka fram að öll verkfæri sem nýst geta eftirlitsaðilum og þar með skattyfirvöldum til að auðvelda störf þeirra og jafnframt við að stuðla að gagnsæi í viðskiptum og til að upplýsa um krosseignatengsl, eru mikils virði.“

 
Fleiri fréttir

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

Capacent vinnur verkefni fyrir Alþjóða­bankann

Fjármögnun á vörudreifingu eða Supply Chain Financing (SCF) getur verið heppilegur stuðningur við framleiðendur í þróunarríkjum sem vilja koma afurðum sínum á alþjóðlegan markað. Þetta er meðal niðurstaðna í könnun sem Capacent hefur unnið fyrir International Finance Corporation, sem er sú eining Alþjóða­bankans, eða World Bank Group í Washington, er sinnir stuðningi við einka­fyrirtæki í þróunarríkjum.

 
 
©2010 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX