amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Föstudagurinn 12. mars 2010 - 21:48
 
Frétt birtist 2. september 2009 klukkan 12:11

Eitt stærsta matvæla­fyrirtæki Noregs framleiðir og selur skyr með sérleyfi frá MS

 
 
 
 
Eftir Einar Kristinn Guðfinnsson Pistill

Aldrei brugðist vondum málstað

Þórólfur Matthíasson prófessor kvartar undan því að vera sagður ganga erinda erlendra þjóða. Þarna er prófessorinn að vísa til þess að Eva Joly ráðgjafi sérstaks saksóknara í bankahruninu skrifaði harðorða grein í Morgunblaðið og Aftenposten í Noregi til þess að svara dæmalaust vitlausri grein eftir prófessorinn í síðar­nefnda blaðinu.

 
Mest lesið
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Morten Mitchell Larød
Norðmenn fá nú að kynnast skyri en sala á því er hafin í fjórum helstu stórmarkaðskeðjum Noregs.

Q-meieriene sem eru í eigu Kavli í Noregi hófu í gær framleiðslu og sölu á skyri í Noregi í samstarfi við Mjólkursamsöluna, sem fær ágóðahlut af sölunni, að því er fram kemur í tilkynningu Mjólkursamsölunnar. „Skyrið er selt í fjórum helstu stórmarkaðskeðjum Noregs. Framleiðslutæknin er sú sama og hjá MS en mjólkurfræðingar frá MS Selfossi eru til aðstoðar nú við upphaf framleiðslunnar.

Í fyrstu er um að ræða 3 bragðtegundir sem voru þróaðar fyrir norska markaðinn, þ.e. skógarber & vanilla, hindber & granatepli og jarðarber & granatepli. Skyrið er í 160 gr.dósum og aðal markhópurinn eru konur á aldrinum 20 til 50 ára. Skyrið er selt sem sérstök gæðavara og dósin kostar um 300 íslenskar krónur.

Q-meieriene ætla sér stóra hluti með þessa vöru í Noregi og hafa lagt mikið undir í markaðssetningunni en áformað er að verja sem nemur um 200 milljónum íslenskra króna á ári í markaðssetningu á skyrvörum næstu 3 árin. Skyrið er framleitt í Gausdal mjólkurbúinu sem er rétt fyrir utan Lillehammer.

Íslendingar neyta um 2.000 tonna af bragðbættu skyri á ári en það er svipað magn og Norðmenn vonast til að selja næsta árið í kjölfar kynningar þar ytra.

Á heimasíðu Q- meieriene (www.q-meieriene.no) segir m.a. að nú loksins megi finna Skyr í mjólkurhillum norskra verslana. Skyrið sé létt og próteinrík millimáltíð sem sé uppruninn frá Íslandi en þar borði neytendur meira af þessari sér íslensku afurð en af jógúrt.

Mjólkursamsalan gerði samning við Q-meierier um sérleyfisvinnslu þeirra á skyri en samningurinn nær einnig til víðtækari samstarfsverkefna á sviði matvælaframleiðslu við móðurfélagið Kavli, sem er einn stærsti matvælaframleiðandi Norges. Þar er um að ræða ný viðskiptaþróunarverkefni, samvinnu í tæknihagræðingu og sameiginlegum innkaupum.

Kavli var stofnað 1893, þegar bóndasonurinn Olav Kavli fékk réttindi til að stofna sjálfstætt matvælafyrirtæki í Bergen. Sonur hans Knut Kavli vildi að fyrirtækið yrði í samfélagslegr eigu og í því skyni stofnaði hann sjálfseignastofnun, Kavli sjóðinn árið 1962. Kavlisjóðurinn er eigandi Kavli fyrirtækisins í dag. Nú selur Kavli mat- og drykkjarvörur í yfir tuttugu löndum og er með eigin framleiðslustöðvar í Noregi og Svíþjóð,“ segir enn fremur í tilkynningu MS.

 
Fleiri fréttir

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Jónas Fr. vísar ásökunum um lygar starfsmanna FME á bug

Starfsmenn Fjármála­eftirlitins gáfu þær upplýsingar um fjárhag Landsbankans sem þeir töldu réttar hverju sinni byggðar á fyrirliggjandi gögnum frá bankanum og hálfsársuppgjöri 2008, árituðu af endurskoðendum bankans. Ásökunum um lygar starfsmanna Fjármála­eftirlitsins er vísað á bug, segir í yfirlýsingu Jónasar Fr. Jónssonar, fv. for­stjóra Fjármála­eftirlitsins.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2010 Straumröst ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX