
Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,3% í júlí frá fyrri mánuði samkvæmt upplýsingum frá Fasteignaskrá Íslands. Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hefur nú lækkað um ríflega 11% að nafnvirði og um tæplega 23% að raunvirði yfir síðustu tólf mánuði. Búast má við að íbúðaverð muni enn gefa eftir á næstu misserum, segir Greining Íslandsbanka.
„Frá því að hápunktinum var náð á íbúðamarkaði í byrjun síðasta árs hefur íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkað um 13% að nafnvirði og 31% að raunvirði en opinberar spár um þróun húsnæðisverðs á næstu misserum gera ráð fyrir að áður en yfirstandandi lægð muni ljúka á fasteignamarkaði árið 2011 muni raunverðslækkun íbúðaverðs nema hátt í 50% frá því að hápunktinum var náð. Samkvæmt því mati er enn umtalsverð lækkun húsnæðisverðs í pípunum. Það er okkar mat að ofangreind hækkun í júlí sé í því ljósi einungis tímabundið flökt í verði íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu á leið þess að frekari lækkun.
Á sama tíma og íbúðaverð lækkar fer byggingarkostnaður hækkandi en samkvæmt vísitölu byggingarkostnaðar sem Hagstofan birti nú í morgun hækkar byggingarkostnaður um 1,2% í ágúst frá fyrri mánuði. Á síðustu 12 mánuðum hefur byggingarkostnaður hækkað um 11,5%. Á sama tíma hefur húsnæðisverð lækkað umtalsvert. Arðsemi í byggingu íbúða hefur því dregist umtalsvert saman á síðustu misserum en mikil arðsemi einkenndi þennan iðnað síðustu ár og átti ríkan þátt í þeim miklu fjárfestingum og framkvæmdum sem áttu sér stað í nýbyggingum íbúða. Dregið hefur verulega úr byggingu íbúðarhúsnæðis undanfarið og eiga minnkandi arðsemi og samdráttur í eftirspurn stærstan þátt í þeirri þróun,“ segir Greiningin enn fremur.
Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum
Sífellt harðari gjaldeyrisreglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.