amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Laugardagurinn 31. júlí 2010 - 08:06
 
Frétt birtist 8. júlí 2009 klukkan 17:16

Um 16 milljarðar í Sjóvá til að styrkja eiginfjárstöðuna

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Sjóvá

Fjárhagslegri endurskipulagningu Sjóvár er lokið. Nýtt félag undir merkjum Sjóvár verður stofnað sem yfirtekur einungis vátryggingastarfsemi hins eldra félags. Þetta felur í sér að fasteignatengd fjárfestingastarfsemi er skilin frá hefðbundinni vátryggingastarfsemi Sjóvár. Viðskiptaráðuneytið segir í tilkynningu að staða tryggingataka sé örugg.

Glitnir, SAT eignarhaldsfélag (félag í eigu Glitnis) og Íslandsbanki, hafa lagt um 16 milljarða inn í Sjóvá til að bæta eiginfjárstöðu félagsins og tryggja rekstur þess til framtíðar. Ríkissjóður hefur veitt SAT eignarhaldsfélagi fyrirgreiðslu, í formi skuldabréfa, gegn veði í hlutafjáreign SAT eignarhaldsfélags í Sjóvá. Með aðkomu sinni vilja stjórnvöld standa vörð um kröfur ríkisins og um leið hagsmuni fjölmargra vátryggingataka. Hafinn verður undirbúningur að formlegu söluferli Sjóvár á næstu mánuðum.

Með endurskipulagningunni uppfyllir Sjóvá öll skilyrði Fjármálaeftirlitsins um vátryggingastarfsemi, félagið hefur nægar eignir á móti vátryggingaskuld og eiginfjárstaða þess er traust.

Sú rannsókn sem nú stendur yfir af hálfu yfirvalda snertir í engu núverandi starfsemi Sjóvár. Starfsmenn félagsins munu veita yfirvöldum allar upplýsingar og aðstoða við rannsókn málsins eins og kostur er.

Í yfirlýsingu vegna þessa segist Hörður Arnarson, forstjóri Sjóvár vera afar ánægður með niðurstöðuna:

„Með víðtæku samstarfi Glitnis, Íslandsbanka, stjórnvalda og Fjármálaeftirlitsins hefur rekstur Sjóvár verið tryggður til framtíðar sem og hagsmunir vátryggingataka félagsins. Sjóvá mun hér eftir sem hingað til leggja höfuðáherslu á að veita viðskiptavinum sínum fyrsta flokks þjónustu og vera í fararbroddi á íslenskum vátryggingamarkaði. “

Viðskiptaráðuneytið staðfestir trausta stöðu

Í tilkynningu frá viðskiptaráðuneytinu því lýst yfir að staða tryggingataka Sjóvár sé örugg.

Bent er á að undanfarna mánuði hafi verið unnið að endurskipulagningu rekstrar og fjárhags tryggingafélagsins sem hafi verið undir sérstöku eftirliti Fjármálaeftirlitsins (FME) á þar sem það uppfyllti ekki skilyrði um gjaldþol vátryggingafélaga.

FME hefur auk þess gert umfangsmikla rannsókn á rekstri og stöðu vátryggingafélagsins. Hefur rannsóknin leitt til þess að ákveðnum þáttum var vísað til sérstaks saksóknara sem tekur ákvörðun um hvort ákærur verða gefnar út.

Það er mat FME að flutningur vátryggingastofna yfir í nýtt vátryggingarfélag sem rekið væri undir merkjum Sjóvár – Almennra trygginga sé ákjósanlegasta leiðin sem minnst raskar hagsmunum vátryggingartaka, segir í tilkynningunni. Þá er ekki talið líklegt að önnur innlend tryggingafélög geti að óbreyttu tekið við vátryggingastofnum Sjóvár:

„Viðskiptaráðuneytið er sammála þessu mati og telur jafnframt ljóst að ekki sé grundvöllur fyrir áframhaldandi starfsemi Sjóvá- Almennra trygginga að óbreyttu.

Vegna þessa mun nýtt vátryggingafélag sem stofnað hefur verið um vátryggingarekstur Sjóvá-Almennra trygginga h.f. taka yfir vátryggingareksturinn.

Fjármálaeftirlitið mun birta auglýsingu um flutning vátryggingastofna Sjóvá-Almennra trygginga h.f. til hins nýja félags og þau réttindi sem vátryggingartökum eru tryggð við slíkan flutning. Hið nýja félag mun starfa undir merkjum Sjóvá.

Að mati ráðuneytisins eru hagsmunir vátryggingartaka og annarra sem eiga hagsmuni á grundvelli vátryggingarsamninga tryggðir með þeim aðgerðum sem hér hefur verið gerð grein fyrir.“

 
Fleiri fréttir

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

Capacent vinnur verkefni fyrir Alþjóða­bankann

Fjármögnun á vörudreifingu eða Supply Chain Financing (SCF) getur verið heppilegur stuðningur við framleiðendur í þróunarríkjum sem vilja koma afurðum sínum á alþjóðlegan markað. Þetta er meðal niðurstaðna í könnun sem Capacent hefur unnið fyrir International Finance Corporation, sem er sú eining Alþjóða­bankans, eða World Bank Group í Washington, er sinnir stuðningi við einka­fyrirtæki í þróunarríkjum.

 
 
©2010 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX