amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 19. júní 2013 - 14:26
 
Frétt birtist 12. júní 2009 klukkan 12:51

Fasteignamat íbúðar­húsnæðis hækkar

Verðmætari eignir hækka meira

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Giulia Sala
Miðborg Reykjavíkur, séð úr Hallgrímskirkjuturni

Fasteignamat íbúðarhúsnæðis hækkar um 2,5% í nýju mati, en fasteignamat atvinnuhúsnæðis lækkar um 6% og jarða um 2,2%. Þá lækkar fasteignamat sumarbústaða um 5%. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fasteignaskrá Íslands. Heildarfasteignamat íbúðarhúsnæðis hækkar á höfuðborgarsvæðinu um 1,2%, Suðurnesjum um 13,2%, Vesturlandi um 4,9%, Vestfjörðum um 11,7%, Norðurlandi vestra um 8,7%, Norðurlandi eystra um 3,1%, Austurlandi um 4,6% og Suðurlandi um 4,2%.

Allt íbúðarhúsnæði landsmanna er metið með nýjum og endurbættum aðferðum í fasteignamati ársins 2010 sem tekur gildi um næstu áramót, segir í frétt frá Fasteignaskrá Íslands.Fasteignamat ársins 2010 miðast við verðlag fasteigna í febrúar 2009 og er frestur til að gera athugasemdir við nýja fasteignamatið til 24. júlí 2009.

Heildarmat fasteigna lækkar en íbúðamat hækkar

Heildarmat fasteigna á landinu öllu lækkar um 0,3% við breytinguna en samanlagt fasteignamat íbúðarhúsnæðis hækkar um 2,5%. Heildarmat annarra fasteigna lækkar um 5,5%. Þar af lækkar fasteignamat atvinnuhús¬næðis um 6,0%, fasteignamat jarða lækkar um 2,2% og fasteignamat sumarbústaða lækkar um 5,0%.

Undanfarna mánuði hefur dregið verulega úr viðskiptum með fasteignir hér á landi og makaskipti fasteigna hefur aukist. Samanburður og greining á fasteignaviðskiptum bæði fyrir og eftir þann tíma sem matið miðast við staðfestir, að nýtt fasteignamat endurspeglar mun betur en áður markaðsvirði íbúðarhúsnæðis og að innbyrðis samræmi er á milli sambærilegra eigna. Þar sem eldra fasteignamat íbúðarhúsnæðis var almennt nokkuð undir gangverði á markaði gætir þeirra verðlækkana sem orðið hafa á fasteignamarkaði undanfarna mánuði ekki með sama hætti í nýju fasteignamati íbúða og annars hefði orðið.

Verðmætari eignir hækka meira

Alls eru skráðar um 122.000 íbúðir á Íslandi. Samanlagt fasteignamat þeirra er 2.755 milljarðar króna en verður 2.824 milljarðar króna með nýju fasteignamati og hækkar um

2,5% sem fyrr segir. Fasteignamat 55.000 íbúða lækkar en fasteignamat 67.000 íbúða hækkar frá síðasta mati. Mat á stærri og verðmætari íbúðum hækkar að jafnaði meira en mat á smærri og verðminni eignum. Í dag er verðmæti um helmings fullbúinna íbúða í landinu metið á bilinu 15,2 upp í 28,4 milljónir króna og hækkar mat þeirra nú um 0,9% Hins vegar hækkar mat þess tíunda hluta íbúða sem metinn er yfir 41 milljón króna að jafnaði um 7,5%.

Hækkun á fasteignamati íbúðarhúsnæðis er minnst á höfuðborgarsvæðinu þar sem eldra fasteignamat lá nær markaðsverði en annars staðar á landinu. Talsverðar innbyrðis breytingar eru hins vegar innan höfuðborgarsvæðisins þar sem mat sumra eigna hækkar ýmist eða lækkar umfram það sem gerist annars staðar á landinu. Heildar fasteignamat íbúðarhúsnæðis hækkar á höfuðborgarsvæðinu um 1,2%, Suðurnesjum um 13,2%, Vesturlandi um 4,9%, Vestfjörðum um 11,7%, Norðurlandi vestra um 8,7%, Norðurlandi eystra um 3,1%, Austurlandi um 4,6% og Suðurlandi um 4,2%.

Breyttar matsaðferðir

Í kjölfar breytinga á lögum um skráningu og mat fasteigna, sem tóku gildi 1. janúar 2009, hafa verið teknar upp endurbættar aðferðir við mat á fasteignum. Í stað þess að framreikna eldra fasteignamat frá ári til árs verður hver fasteign endurmetin árlega í ljósi kaupsamninga sem gerðir hafa verið um sambærilegar eignir. Breytt matsaðferð verður innleidd í áföngum og í ár er íbúðarhúsnæði í fyrsta skipti metið samkvæmt hinni nýju aðferð. Á næstu árum verða atvinnuhús og sumarhús einnig metin með hliðstæðum hætti.

Auk upplýsinga um gangverð á fasteignamarkaði, sem unnar hafa verið upp úr tugþúsundum þinglýstra kaupsamninga síðast liðin fimm ár, byggist breytt íbúðamat á margvíslegum upplýsingum um eiginleika og gerð hverrar eignar. Alls eru það á annan tug ólíkra þátta sem nú hafa áhrif á verðmat íbúða en þar á meðal eru þættir eins og stærð, byggingarár, einbýli/fjölbýli, byggingarefni og staðsetning. Þá hafa skráningargögn og kaupsamningar verið yfirfarin og ný reiknilíkön tekin í notkun, sem byggja á tölfræðilegri greiningu á þeim eiginleikum sem helst hafa áhrif á markaðsverðið.

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2013 - - RSS - Um AMX