
ASÍ kynnti í gær siðareglur þar sem fram kemur að starfs- og stjórnarmönnum lífeyrissjóða er óheimilt að þiggja eða sækjast eftir gjöfum eða fjármunum frá viðskiptavinum. Þá er þeim óheimilt að þiggja boðsferðir af viðskiptavinum, innanlands sem utan, hvort sem um er að ræða skemmtiferðir, svo sem veiðiferðir og golfferðir, eða kynnisferðir vegna einstakra fyrirtækja eða viðskiptakosta.
Á síðu ASÍ segir:
„ASÍ stóð fyrir ráðstefnu um hlutverk og ábyrgð stjórnarmanna í lífeyrissjóðum í gær. Þar kynntu Kristján Gunnarsson formaður Starfsgreinasambandsins og Guðmundur Gunnarsson formaður Rafiðnaðarsambandsins m.a. hugmyndir ASÍ um ábyrgar fjárfestingar lífeyrissjóðanna og innri starfsemi þeirra. Hugmyndirnar sem fjallað hefur verið um í miðstjórn ASÍ má sjá hér fyrir neðan.
Miðstjórn ASÍ beinir því til stjórnarmanna í lífeyrissjóðum að fram fari opin og lýðræðisleg umræða um samfélagslega ábyrgð í fjárfestingum sjóðanna. Slík umræða er mikilvægur hluti af því endurmati sem nú fer fram í samfélaginu. Miðstjórn leggur til að unnið verði út frá neðangreindum hugmyndum lífeyrisnefndar ASÍ að reglum um samfélagslega ábyrgar fjárfestingar lífeyrissjóðanna en leggur jafnframt ríka áherslu á mikilvægi árframhaldandi upplýstrar umræðu um innihald, tilgang og gildi slíkra reglna. Lagt er til að stofnuð verði sérstök Siðanefnd lífeyrissjóðanna á vettvangi Landssambands lífeyrissjóða sem fái það hlutverka að móta reglurnar áfram og fjalla um álitamál sem upp kunna að koma. Miðstjórn beinir því jafnframt til íslenskra stjórnvalda að þau beiti sér fyrir kynningu og framgangi Vegvísis OECD fyrir fjölþjóðleg fyrirtæki (OECD Guidelines for Multinational Enterprises) sem eru víðtækar fyrirmyndarreglur um ábyrgan fyrirtækjarekstur fyrir öll fyrirtæki.
Hugmyndir Lífeyrisnefndar ASÍ að reglum um samfélagslega ábyrgar fjárfestingar lífeyrissjóðanna:
·Sjóðurinn tekur ekki þátt í fjárfestingum sem orka tvímælis út frá almennum siðferðisreglum.
·Sjóðurinn leggur ítarlegt mat á fjárfestingarkosti sína og kappkostar að fjárfesta í fyrirtækjum sem eru vel rekin og hafa jafnframt siðræn gildi að leiðarljósi. Í því felst m.a. að viðhafa góða stjórnunarhætti, sýna samfélagslega ábyrgð og ábyrgð í umhverfismálum.
·Sjóðurinn leggur áherslu á að þau fyrirtæki sem fjárfest er í starfi samkvæmt lögum og reglum, virði alþjóðlega sáttmála um mannréttindi, réttindi launafólks, barnavinnu og umhverfisvernd.
·Sjóðurinn leggur áherslu á að fyrirtæki sem fjárfest er í starfi innan ramma alþjóðlegra leiðbeinandi reglna, s.s reglna Sameinuðu þjóðanna um ábyrgar fjárfestingar og vegvísis OECD fyrir fjölþjóðleg fyrirtæki um ábyrgan fyrirtækjarekstur.
·Sjóðurinn leggur heildstætt mat á stjórnun og starfsemi fyrirtækis út frá þáttum á borð við: framleiðsluvörur þess, framleiðsluferli, sambandi við viðskiptavini, fyrirtækjamenningu, eignarhald og hagsmuni eigenda. Meðal annars metur sjóðurinn hvort fyrirtæki komi beint eða óbeint að framleiðslu á vopnum sem notuð eru á þann hátt að það brýtur gegn grundvallar mannréttindum.
·Sjóðurinn byggir mat sitt á opinberum upplýsingum og upplýsingum sem fyrirtækið sjálft veitir. Mat er lagt á afstöðu stjórnar og ábyrgð fyrirtækis og stjórnun með hliðsjón af ofangreindum þáttum.
·Sjóðurinn fylgir eftir öllum fjárfestingum sínum og skal ekki eiga hlut í fyrirtækjum sem uppfylla ekki reglur sjóðsins um samfélagslega ábyrgar fjárfestingar.
·Sjóðurinn tekur tillit til ákvarðana Siðanefndar lífeyrissjóðanna og fjárfestir ekki í fyrirtækjum sem nefndin leggst gegn að fjárfest sé í.
·Sjóðurinn skal í ársskýrslu sinni gera grein fyrir fjárfestingum sínum með sérstakri hliðsjón af stefnu í samfélagslega ábyrgum fjárfestingum.
Í umfjöllum um innri starfsemi lífeyrissjóðanna hefur verið rætt um hversu ýtarlegar þær reglur sem ASÍ ætti að leggja til að yrðu settar, þar sem þau tilvik sem upp gætu komið eru mjög fjölbreytt og erfitt að setja reglur sem tækju á öllu. Miðstjórn telur mikilvægt að stjórnir lífeyrissjóðanna hafi alltaf góðar upplýsingar um stöðu mála og einstakar ákvarðanir auk. Jafnframt er mikilvægt að reglurnar endurspegli traust á starfsmönnum sjóðanna.Til að taka af allan vafa telur miðstjórn nauðsynlegt að leggja til nokkuð einfaldar og skýrar grunnreglur um nokkur álitamál. Mikilvægt er að þessum reglum verði fylgt eftir af innri endurskoðendum lífeyrissjóðanna þannig að við frágang ársreikninga liggi fyrir greinargerð og úttekt á öllum ferðum.
Tillögur Skipulags og starfsháttarnefndar ASÍ að ákvæðum um innri starfsemi lífeyrissjóðanna:
Starfs- og stjórnarmönnum lífeyrissjóðsins er óheimilt að þiggja eða sækjast eftir gjöfum eða fjármunum frá viðskiptavinum eða væntanlegum viðskiptamönnum sem á einn eða annan hátt tengjast starfi þeirra. Undanteknar eru jóla- og afmæliskveðjur, sem eru að fjárhagslegu verðmæti innan marka sem teljast algeng í slíkum tilvikum skv. nánari reglum stjórnar eða um er að ræða persónuleg tengsl sem ekki verða rakin til viðskipta við lífeyrissjóðinn.
Starfs- og stjórnarmönnum er óheimilt að þiggja boðsferðir af viðskiptavinum, innanlands sem utan, hvort sem um er að ræða skemmtiferðir, svo sem veiðiferðir og golfferðir, eða kynnisferðir vegna einstakra fyrirtækja eða viðskiptakosta. Undanteknar eru ferðir sem talið er að hafi upplýsingagildi fyrir lífeyrissjóðinn eða gera hann hæfari til að sinna hlutverki sínu. Í slíkum tilvikum skal metið af yfirmanni eða sjóðstjórn eftir atvikum hvort svo sé, enda greiði lífeyrissjóðurinn sjálfur kostnað við ferðina nema annað sé sérstaklega ákveðið og formleg heimild veitt til. Sjóðstjórn skal reglulega gerð grein fyrir öllum ferðum skv. framansögðu.
Stjórn lífeyrissjóðsins skal setja starfsemi hans og starfsmönnum almennar samskipta og siðareglur.“
Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum
Sífellt harðari gjaldeyrisreglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.