amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 22. maí 2013 - 16:59
 
Frétt birtist 6. júní 2009 klukkan 09:54

Røkke og Jón Helgi leita olíu á Dreka­svæðinu

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Sjónvarpið
Gunnlaugur Jónsson, framkvæmdastjóri Straumborgar.

Tveir af þekktustu athafnamönnum Íslands og Noregs standa að fyrirtækjunum tveimur sem sóttu um sérleyfi til rannsóknar og vinnslu kolvetnis á Drekasvæðinu. Þetta eru þeir Kjell Inge Røkke, sem stendur að Aker Exploration, og Jón Helgi Guðmundsson, einn aðaleigenda Norvik, sem er einn af stærstu hluthöfunum í Sagex í gegnum Lindir Resources, að því er Fréttablaðið greinir frá og Vísir vitnar til. Jón Helgi er kunnur sem aðaleigandi Byko.

Í fréttinni segir:

„Íslendingar eiga samanlagt fimmtung í Sagex. Lindir Resources, í eigu Straumborgar, félags Jóns Helga og fjölskyldu, á stærsta íslenska hlutinn í Sagex, tæp tólf prósent. Redsquare Invest, félag í eigu Jóns Snorrasonar, á rúm fjögur. Aðrir Íslendingar eiga tæp sex prósent.

Norska félagið Xegas er stærsti hluthafinn í Sagex með átján prósenta hlut en það er í eigu tveggja helstu stjórnenda Sagex. Bandaríski fjárfestingarsjóðurinn Spin­drift Wellington er svo þriðji stærsti hluthafinn með tæp tíu prósent.

Gunnlaugur Jónsson, framkvæmdastjóri Straumborgar, segir varnarsigur fyrir stjórnvöld að tvö olíufélög skyldu sækja um leyfi.

„En ekkert stórkostlegt þegar vonast var eftir fimm til tíu umsóknum. Ástæðan er augljóslega sú að ástandið í heiminum er það erfitt að olíufélög hafa úr nægu að velja, jafnvel svæðum sem eru betur könnuð en hér og þar sem kostar minna að sækja olíuna.“

Gunnlaugur bendir á að líkurnar á olíufundi við hverja borun sé einungis 10 til 20 prósent.“

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2013 - - RSS - Um AMX