amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Föstudagurinn 12. mars 2010 - 02:35
 
Frétt birtist 6. febrúar 2009 klukkan 10:37

Ástralinn áfram í keppninni um Moggann

 
 
 
 
Eftir Einar Kristinn Guðfinnsson Pistill

Aldrei brugðist vondum málstað

Þórólfur Matthíasson prófessor kvartar undan því að vera sagður ganga erinda erlendra þjóða. Þarna er prófessorinn að vísa til þess að Eva Joly ráðgjafi sérstaks saksóknara í bankahruninu skrifaði harðorða grein í Morgunblaðið og Aftenposten í Noregi til þess að svara dæmalaust vitlausri grein eftir prófessorinn í síðar­nefnda blaðinu.

 
Mest lesið
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Ed
Fjórir aðilar halda áfram í söluferli á Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins.

Ástralinn Steve Cosser, Óskar Magnússon, Hallbjörn Karlsson og Árni Hauksson og Almenningshlutafélag um rekstur Morgunblaðsins eru fjárfestarnir sem boðið hefur verið að halda áfram í söluferli Fyrirtækjaráðgjafar Nýja Glitnis á hlutafé í Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins, segir í frétt mbl.is.

Þar segir síðan:

„Óskar Magnússon fer fyrir hópi fjárfesta sem hann vill ekki nefna að svo stöddu.

„Við erum að fara í áreiðanleikakönnun næstu daga og fáum þá frekari upplýsingar og gögn. Þá verður tekin endanleg afstaða til þess hvort við gerum bindandi tilboð,“ segir Óskar sem segir hópinn hafa lýst formlega áhuga á kaupunum fyrir áramót.

„Þegar ekkert gerðist hvöttum við til þess að þetta yrði auglýst eins og gert hefur verið,“ bætir Óskar við.

Steve Cosser óttast ekki keppinautana. „Við fáum þetta þar sem við bjóðum best. Það er ekki spurning,“ segir hann við viðtali við mbl.

Vilhjálmur Bjarnason, lektor við viðskiptadeild Háskóla Íslands, fer fyrir hópi smærri fjárfesta í Almenningsfélagi um rekstur Morgunblaðsins.

Árni Hauksson og Hallbjörn Karlsson eru fjárfestar. Þeir voru aðaleigendur Húsamiðjunnar áður en hún var seld núverandi eigendum. Árni var á árum áður aðstoðarframkvæmdastjóri Frjálsrar fjölmiðlunar, sem m.a. gaf út DV á þeim tíma.

Tengt efni

 
Fleiri fréttir

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Jónas Fr. vísar ásökunum um lygar starfsmanna FME á bug

Starfsmenn Fjármála­eftirlitins gáfu þær upplýsingar um fjárhag Landsbankans sem þeir töldu réttar hverju sinni byggðar á fyrirliggjandi gögnum frá bankanum og hálfsársuppgjöri 2008, árituðu af endurskoðendum bankans. Ásökunum um lygar starfsmanna Fjármála­eftirlitsins er vísað á bug, segir í yfirlýsingu Jónasar Fr. Jónssonar, fv. for­stjóra Fjármála­eftirlitsins.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2010 Straumröst ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX