Jón Ásgeir Jóhannesson kennir Davíð Oddssyni um að Baugur geti ekki staðið skil á skuldum sínum

Í viðtali Sigríðar Hagalín Björnsdóttur við Jón Ásgeir Jóhannesson, sem spilað var á RÚV og er hér birt í textaformi, kemur fram sú skoðun Jóns Ásgeirs að Davíð Oddsson seðlabankastjóri sé sá sem beri ábyrgð á greiðslustöðvun félagsins en ekki sú krafa Baugs að lengja verulega í endurgreiðslu lána til Landsbankans líkt og fram kemur í viðtalinu. Viðtalið er birt hér í heild sinni í textaformi.
Heimildir AMX herma einnig að Baugur hafi ekki getað staðið við stóra greiðslu af skuldabréfum fyrir rúmlega tveimur dögum sem leitt til þess að m.a. Landsbankinn höfnuðu frekari samningsumleitunum og fóru fram á greiðslustöðvun.
SHB: Geturðu útskýrt fyrir mér hvað gerðist þarna, hvað.. hvers vegna er.. er.. Baugur farinn í greiðslustöðvun?
JÁJ: Ja við gerðum það í framhaldi af því að Landsbankinn boðaði það að þau slitu við okkur viðræðum um endurskipulagningu á skuldum félagsins. Við höfum eins og önnur fyrirtæki í landinu verið í viðræðum við bankann og við höfum lagt upp það plan að greiða bankanum allar sínar skuldir til baka ekki fara fram á neinar afskriftir og þess vegna kom okkur þessi niðurstaða Landsbankans okkur mjög á óvart.
SHB: Hvaða skýringar gaf bankinn á því?
JÁJ: Bankinn gaf engar skýringar og faldi sig á bakvið einhverja skýrslu frá PriceWaterhouse sem þeir neituðu að sýna okkur sem þeir sögðu að væri með afgerandi niðurstöðu um málið og.. og þar sem að þeir töldu sig geta fengið meira út út veðunum með þessum hætti.. hins vegar kemur það skýrlega í ljós í gögnum sem þeir lögðu fyrir dómara að það verðmat sem þeir eru með á eignunum er langt undir því sem við buðumst til að skila á þessar eigur
SHB: Þannig að buð.. hafið boðist til að greiða upp skuldir
ykkar á.. á.. fyrir ákveðið verð en þeir vildu fá ennþá hærra verð fyrir þær og töldu sig geta fengið það með þessum hætti?
JÁJ: Já.. töldu sig.. eða það voru svörin en hins vegar kemur fram í dómsskjölum að það stemmir ekki alveg vegna þess að það sem að PriceWaterhouse er að leggja fram í skjölunum er miklu.. miklu lægra verð heldur en það sem við buðum
SHB: Hvaða skýringar telur þú líklegastar á þessu?
JÁJ: Ég hallast að því að þetta sé nú eitthvað.. einhver pólitík í þessu... ég... kannski hljómar sem gömul tugga en.. en þetta er einkennilegur.. hérna.. einkennileg tímasetning enn og aftur
SHB: Hvað áttu við með því?
JÁJ: Ja ég á bara við með því.. hvað.. að hérna.. það sem er að gerast í þjóðfélaginu.. og hverjir eru að láta af störfum og þau tengsl eða ekki tengsl við þetta fyrirtæki í gegnum tíðina
SHB: Heldurðu að þetta hafi eitthvað að gera með Davíð Oddsson
JÁJ: Ja það hringdi nú í mig maður í gærkvöldi í innsta kopp í Sjálfstæðisflokknum að það hefði verið skýlaus krafa hjá Davíð Oddssyni að Baugur færi á undan honum
SHB: Akkurat... uhh.. Hvað verður um fyrirtækið núna, hvað verður um eignir Baugs?
JÁJ: Ja ég reikna nú með því að með svona framkomu eins og Landsbankinn er að sýna í okkar hag þá sé nú líklega niðurstaðan að þessar góðu eignir okkar, mjög óðu eignir okkar erlendis lendi í höndunum á breskum hrægömmum sem líklega ná þessu fyrir lítið eða ekkert ... á sama tíma og við ætlum að borga Bretum upp í topp með sína Icesave reikninga
SHB: Þannig að þú átt von á því að þetta verði brunaútsala á eignum ykkar?
JÁJ: Það er ekkert annað fram undan því það er alveg ljóst að fyrirtækin geta ekki verið með gjaldþrota banka sem hluthafa í langan tíma
SHB: hvað verður um eignir ykkar hér, nú.. nú.. eignir þínar hér á íslandi, Haga og það sem því fylgir
JÁJ: Hagar og 365 er ekki innan Baugs þannig að það kemur þessu máli ekkert við.
SHB: En Hvernig standa þessi fyrirtæki?
JÁJ: Þau standa ágætlega
SHB: Óttastu að það fari.. fari fyrir þeim með svipuðum hætti?
JÁJ: Nei
SHB: Uhm.. Hvað hérna.. nú nú.. nú langar mig til að spyrja þig .. já þú.. hvað ætlarðu að gera í framhaldinu ef þig grunar að þarna sé maðkur í mysunni.. að hvað.. til hvaða ráða muntu taka?
JÁJ: Við tókum til þeirra bragða þegar við fréttum þetta og okkur grunaði að maðkur væri í mysunni að þá fórum við fram á greiðslustöðvun til að koma með sanngjörnum hætti fram við alla lánveitendur til félagsins.. þannig að hérna.. við munum leitast til að vinna að lausn með öllum.. öllum aðilum sem koma að þessu en okkur finnst aðgerð Landsbankans mjög hostile eins og það er kallað
SHB: Hversu verðmætar eru eignir Baugs núna?
JÁJ: Ja það er nú eins og heimurinn er í dag þá erfitt er að finna verðmæti á einhverja hluti en ég tel.. bara til að setja hlutina í samhengi að þá er verslunarkeðja eins og Iceland Foods er að skila jafn miklum hagnaði á ári eins og allur sjávarútvegurinn á Íslandi og menn geta síðan tekist á um hversu verðmætt það er en það er allavega ljóst að þarna eru gríðarlega verðmæt fyrirtæki.. gríðarlega verðmæt vörumerki.. sem er verið að kasta fyrir róða með þessari aðgerð Landsbankans
SHB: Nú að lokum langar mig til að spyrja þig, þegar Glitnir var tekinn í þrot, þá varpaðirðu ábyrgðinni á því yfir á Seðlabankann og núna er Baugur tekinn til.. jah.. tekinn til greiðslustöðvunar og þú telur það Landsbankanum og kannski óbeint Davíð Oddssyni um að kenna.. er ekki ástæða til að líta í eigin barm og segja að kannski voru þessi fyrirtæki ekki hreinlega nógu vel rekin
JÁJ: Ja við skulum skoða rekstur þessara fyrirtækja áður en hlutirnir gerðust. Það var ekkert að rekstri stoða áður en að Seðlabankinn greip inn með þessum hætti. Uhh.. Það.. í raun það plan sem við lögðum upp með Landsbankanum var þannig að það var mun betur boðið en önnur eignarhaldsfélög hafa boðið bönkunum heima og hafa fengið, hérna, fylgi við hjá skilanefndum þannig að maður kemur að þeirri niðurstöðu að þarna séu einhver annarleg sjónarmið á ferðinni. Það er ekkert hægt að draga úr því.
SHB: Hvað buðuð þið..
JÁJ: Þetta eru alltof margar tilviljanir sem koma saman á sama tíma þannig að það geti verið tilviljanir.
SHB: Hvað buðuð þið Landsbankanum fyrir eignir Baugs, fyrir skuldir Baugs?
JÁJ: Við bara buðum að borga þær til baka.
SHB: Þú getur ekki nefnt fjárhæðina?
JÁJ: Ne.. við bara buðum að borga til baka það sem við skulduðum þeim.. á heldur lengri tíma heldur en lánaskilmálar í lánunum hváðu á um. En að setja 50.000 störf í uppnám í Bretlandi með þessum hætti er náttúrulega algjörlega óskiljanlegt. Það er ekki það sem við þurfum í Bretlandi
Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum
Sífellt harðari gjaldeyrisreglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.