amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Fimmtudagurinn 17. maí 2012 - 14:47
 
Frétt birtist 4. febrúar 2009 klukkan 15:37

Sérstakt eignar­halds­félag er um Haga

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
RetailWeek
Jón Ásgeir Jóhannesson.

Róttækar breytingar voru gerðar á skipulagi Baugs Group á síðasta ári og voru allar fjárfestingar félagsins hér á landi færðar yfir í önnur félög. Þannig tók eignarhaldsfélagið 1998 ehf. yfir Haga, sem m.a. reka Bónus, Hagkaup og 10-11. Langstærsti hluthafinn í 1998 ehf. er Gaumur fjárfestingarfélag Jóns Ásgeirs og fjölskyldu. Þá er Ingibjörg Pálmadóttir eiginkona hans einnig hluthafi.

Við þessar tilfærslur lækkuðu skuldir Baugs Group töluvert, en ekki liggur fyrir hversu mikið. Í tengslum við uppstokkunina varð Stoðir Invest til, en það félagið tók yfir hlutabréf í 365 og Teymi. Styrkur Invest (áður BG Capital) var tekið út úr Baugi og Kaldbakur, fjárfestingarfélag Samherja, gekk til liðs við félagið, sem var eftir sem áður að stærstum hluta í eigu helstu hluthafa Baugs Group. Styrkur Invest hélt um hlutabréfin í Stoðum (áður FL Group), sem nú er í greiðslustöðvun en Stoðir voru aftur stærsti hluthafinn í Glitni.

Jón Ásgeir Jóhannesson hefur sagt í dag við fjölmiðla að greiðslustöðvun Baugs Group og BG Holding, hafi engin áhrif á starfsemi Haga eða fjölmiðlafyrirtækisins 365.

Hvað verður um Haga?

Jón Ásgeir sagði í viðtali við Egil Helgason í byrjun október að það verði að koma í ljós hvort hann og fjölskylda hans muni eiga verslunarrekstur á Íslandi áfram. Hann vildi því ekki fullyrða eitt eða neitt um hvort fjölskyldunni tækist, í þeim hremmingum, sem ganga yfir, að halda eign sinni í Högum.

Hagar er samsteypa fjölmargra fyrirtækja og er Bónus innan vébanda félagsins. Það yrði því ekki aðeins fjárhagslegt áfall heldur einnig sálrænt fyrir Jón Ásgeir og föður hans Jóhannes Jónsson, ef fjölskyldan þarf að horfa á eftir Högum.

Alls eru reknar um 80 verslanir undir Högum og var eigið fé félagsins í lok síðasta rekstrarárs 8,8 milljarðar króna (rekstrarárið er frá mars til febrúar ár hvert). Hagnaður nam alls 527 milljónum króna en skuldir í lok febrúar voru tæpir 19,2 milljarðar. Á því reikningsári greiddu Hagar út einn milljarð króna í arð til hluthafa, en þá var Baugur Group með 95% hlutafjár.

Hins vegar snérist rekstur Haga til hins verra, líkt og margra fyrirtækja, á liðnu ári. Í árshlutauppgjöri frá mars til ágúst 2008, kemur fram að tap félagsins hafi numið 1.409 milljónum króna, en á sama tíma 2007 skilaði reksturinn 715 milljónum í hagnað. Verri afkoma skýrist fyrst og fremst af því að fjármagnskostnaður nær fimmfaldaðist á milli ára.

Myndir frá afhendingu Útflutningsverðlauna forsetans. Birt á heimasíðu forsetaembættisins.

Í lok ágúst námu heildarskuldir Haga 11.958 milljónum króna en bókfært eigið fé var 6.687 milljónir. Gera má ráð fyrir að skuldir félagsins hafi aukist töluvert frá þessum tíma, bæði vegna gengis- og verðlagsþróunar, en einnig vegna almennra erfiðleika í efnahagslífinu sem kemur niður á verslunarrekstri.

Tengt efni

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2012 - - RSS - Um AMX