amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 06:42
 
Frétt birtist 4. febrúar 2009 klukkan 14:00

Hvað er Baugur Group?

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
AMX

Baugur Group hefur verið skilgreint sem alþjóðlegt fjárfestingarfélag sem leggur megináhersluna á fjárfestingar í smásöluverslunum og tískufyrirtækjum í Bretlandi, á Norðurlöndunum og í Bandaríkjunum. Tugir verslana of fyrirtækja falla undir Baug með einum eða öðrum hætti.

Upplýsingarnar hér að neðan eru af heimasíðu fyrirtækisins.

Hvað er Baugur Group?

Baugur er alþjóðlegt fjárfestingafélag með megin áherslu á fjárfestingar í smásöluverslun og tískufyrirtækjum í Bretlandi, Skandinavíu og Bandaríkjunum.

Hjá fyrirtækjum sem Baugur er kjölfestufjárfestir í starfa um 50 þúsund manns í yfir 3.500 verslunum. Velta fyirrtækjanna nam á síðasta rekstrarári um fimm milljörðum punda.

Forstjóri Baugs er Gunnar Sigurðsson.

Tíska:

Helstu tískuvörumerki sem Baugur er fjárfestir í eru Mosaic Fashions, sem starfrækir sex kvenfatamerki á borð við Karen Millen, Coast og Oasis auk skóvörumerkja eins og Nine West og Pied à Terre. Einnig á Baugur hlut í dönsku tískukeðjunni Day Birger et Mikkelsen, bresku tískuverslununum Whistles, All Saints og Jane Norman sem og tískufyrirtækjum á borð við Matthew Williamson og Steinunni.

Stórverslanir:

Helstu fjárfestingar Baugs sem flokkast undir stórverslanir eru House of Fraser í Bretlandi og Magasin du Nord og Illum í Danmörku. Að auki á Baugur hlut í sænsku stórversluninni SOUK, sem leggur áherslu á tískuvöru fyrir ungt fólk - sú fyrsta og eina sinnar tegundar í Evrópu.

Matvara:

Helsta fjárfesting Baugs í matvörugeiranum er verslanakeðjan Iceland.

Sérvöruverslanir:

Helstu eignir Baugs sem flokkast undir sérvöru eru leikfangaverslanir Hamleys; skartgripakeðjurnar Goldsmiths, Mappin & Webb og Watches of Switzerland sem og garðyrkjuvörufyrirtækið Wyevale Garden Centres.

Skráð félög:

Baugur fer með eignarhlut í nokkrum skráðum fyrirtækjum, þar á meðal bandarísku stórverslanasamstæðunni Saks, bresku stórverslanakeðjunni Debenhams sem og tískuhúsinu French Connection.

Tengt efni

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX