
Samkeppniseftirlitið hefur með ákvörðun í dag lagt þriggja milljóna króna dagsektir á Teymi hf. þar sem fyrirtækið hefur ekki farið að fyrirmælum Samkeppniseftirlitsins um breytingar á stjórn IP-fjarskipta (Tals), sem mælt var fyrir um í ákvörðun til bráðabirgða frá 26. janúar sl., að því er fram kemur á síðu Samkeppniseftirlitsins.
Þar segir:
„Með bráðabirgðaákvörðuninni mælti Samkeppniseftirlitið fyrir um að fulltrúar Teymis í stjórn Tals skyldu víkja úr stjórninni eigi síðar en 30. janúar sl. Í stað þeirra skyldu síðan skipaðir tveir óháðir einstaklingar, tilnefndir af Samkeppniseftirlitinu.
Samkeppniseftirlitið taldi sennilegt í bráðabirgðaákvörðun sinni að fulltrúar Teymis hefðu beitt sér gegn samkeppnislegu sjálfstæði Tals og því væri nauðsynlegt að gera breytingar á stjórn Tals. Ella væri hætta á því að Teymi og Vodafone gætu veikt Tal varanlega sem keppinaut á markaði. Með háttsemi sinni hefðu Teymi, Vodafone og Tal brotið gegn ákvörðun eftirlitsins um samruna Teymis og Tals frá síðasta ári og ákvæðum samkeppnislaga.
Samkeppniseftirlitið telur að Teymi hafi virt framangreind fyrirmæli að vettugi. Það liggur fyrir að fulltrúar Teymis í stjórn Tals eru enn stjórnarmenn í félaginu og af því leiðir einnig að þeir einstaklingar sem tilnefndir hafa verið af Samkeppniseftirlitinu hafa ekki verið skipaðir í stjórn Tals. Ljóst er að stjórnendur Teymis hafa á valdi sínu að hlutast til um efndir á fyrirmælum Samkeppniseftirlitsins en félagið hefur ekki farið að þeim. Telur Samkeppniseftirlitið því að Teymi hafi brotið gegn fyrrnefndri bráðabirgðaákvörðun nr. 1/2009.
Í því skyni að knýja á um efndir framangreindra fyrirmæla hefur Samkeppniseftirlitið tekið ákvörðun um álagningu dagsekta vegna vanrækslu Teymis. Skal Teymi greiða þrjár milljónir króna á dag þar til bráðabirgðaákvörðuninni hefur verið framfylgt um að núverandi fulltrúar Teymis í stjórn Tals víki úr stjórn og að nýir óháðir einstaklingar verði skipaðir í þeirra stað.
Samkeppniseftirlitið gerði húsleit á starfstöðvum Teymis, Vodafone og Tals þann 7. janúar sl. Hafði Samkeppniseftirlitið aflað sér húsleitarheimildar í samræmi við lög og lagt var hald á gögn frá viðkomandi fyrirtækjum. Þar sem Samkeppniseftirlitið taldi að bið eftir endanlegri niðurstöðu stofnunarinnar gæti haft í för með sér alvarlegan og óafturkræfan skaða á samkeppni, var þann 26. janúar sl. tekin ákvörðun til bráðabirgða nr. 1/2009 vegna málsins. Í henni er komist að þeirri niðurstöðu að Teymi, Vodafone og Tal hafi sennilega brotið gegn ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 36/2008 og ákvæði 10. gr. samkeppnislaga með því að hafa samráð um að Tal ætti ekki að stunda samkeppni gagnvart Vodafone. Þá kemst Samkeppniseftirlitið að þeirri niðurstöðu að sennilegt sé að tiltekin ákvæði í sýndarnetssamningi Tals og Vodafone um aðgang Tals að farsímaneti Vodafone séu til að tryggja hagsmuni Vodafone og Teymis sem sé andstætt ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 36/2008. Telur Samkeppniseftirlitið að samningurinn geti dregið úr þeirri samkeppni sem Tal getur stundað á markaðnum og þar með fari þau í bága við ákvæði 10. gr. samkeppnislaga.
Samkeppniseftirlitið mælti því fyrir um að fulltrúar Teymis í stjórn Tals skyldu víkja og í stað þeirra skuli skipaðir tveir óháðir einstaklingar, tilnefndir af Samkeppniseftirlitinu. Þá voru tiltekin ákvæði í samningi Tals og Vodafone um aðgang Tals að farsímaneti Vodafone lýst ógild á þeim grundvelli að þau væru andstæð ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 36/2008 Samruni Teymis hf. og IP-fjarskipta ehf. og ákvæði 10. gr. samkeppnislaga.“
Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum
Sífellt harðari gjaldeyrisreglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.