
Með Ampera verður Opel fyrsti evrópski bílaframleiðandinn sem býður fram rafbíl sem kemst fleiri hundruð kílómetra í einu,- segir Alain Visser markaðsstjóri GM Europe við evrópska bílafjölmiðla, að því er fram kemur a síðu Félags íslenskra bíleigenda FÍB).
Ampera verður sýndur í fyrsta sinn undir því nafni á bílasýningunni í Genf í mars nk. Í raun er þetta þó Chevrolet Volt sem búið er að marg sýna bæði vestanhafs og austan undanfarna mánuði og ár - og greint hefur verið frá hér á AMX sem helstu von bílarisans General Motors.
Á síðu FÍB segir síðan:
„Þegar fyrsta mótaða hugmyndin að þessum rafbíl var fyrst sýnd í Detroit árið 2007 vakti hann verulega athygli fyrir ýmislegt. Í fyrsta lagi var hann sýndur sem hreinn rafmagnsbíll og í öðru lagi var hönnun hans mjög frumleg og flott. Hönnuðurinn, sem heitir Theresa Tant hafði hannað sérstakan undirvagn sem byggja mátti ofan á með margskonar hætti, en sú sportlega útgáfa sem sýnd var í Detroit þarna um árið þótti mjög álitleg. Sú framleiðsluútgáfa sem síðar hefur verið marg sýnd er nú orðin að tvinnbíl sem kemst ca. 60 km á rafmagnshleðslunni einni en síðan tekur ljósamótor við og framleiðir þann straum sem þarf til að knýja bílinn áfram þegar lækkað hefur á geymunum. Þá er útlit framleiðsluútgáfunnar orðið mun hefðbundnara en var á hugmyndabíl hönnuðarins Theresu Tant þarna um árið.
Lengi vel var reiknað með að í Evrópu fengi Chevrolet Volt nafnið Opel Flextreme en nú mun semsagt ákveðið að það verði Opel Ampera. Drægi bílsins á rafgeymunum einum verður 60 kílómetrar. Það er hugsað út frá því að daglegur meðalakstur á heimilisbíl í Þýskalandi er einmitt 60 km. Þannig á meðaljóninn að komast til vinnu og heim aftur auk þess að reka erindi sín á bílnum. Þegar heim er komið er honum stungið í samband og eru geymarnir fullhlaðnir eftir fáeinar klukkustundir og bíllinn tilbúinn til aksturs næsta morgun.
Þegar lækka tekur á geymunum fer bensín- eða dísilvél í gang og knýr rafal sem hleður inn á geymana og gefur einnig straum til að knýja bílinn áram sem ekkert hafi í skorist. Heildar vinnuhringur bílsins er því ekki minni en venjulegs fólksbíls með bensín- eða dísilvél.“
Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum
Sífellt harðari gjaldeyrisreglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.