amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Þriðjudagurinn 7. febrúar 2012 - 09:53
 
Frétt birtist 26. janúar 2009 klukkan 17:09

Nýi Glitnir auglýsir eftir tilboðum í Árvakur

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Ed
Nýi Glitnir mun á næstu dögum auglýsa eftir tilboðum í nýtt hlutafé Árvakurs, útgáfufélag Morgunblaðsins.

Árvakur hf., útgáfufélag Morgunblaðsins, hefur falið Fyrirtækjaráðgjöf Nýja Glitnis banka hf. að annast ráðgjöf og formlegt ferli sem lýtur að öflun hlutafjár fyrir félagið. Bankinn mun á næstu dögum auglýsa eftir tilboðum í nýtt hlutafé Árvakurs, sem gefið verður út eftir að núverandi eigendur færa niður eign sína í félaginu, segir í tilkynningu Nýja Glitnis.

„Söluferlið verður opið öllum áhugasömum fjárfestum sem uppfylla skilyrði til þess að geta talist fagfjárfestar samkvæmt lögum nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti .

Áhugasamir fjárfestar þurfa að fylla út trúnaðaryfirlýsingu og skila henni til Fyrirtækjaráðgjafar Nýja Glitnis fyrir kl. 16:00, föstudaginn 30. janúar nk. Gögn verða afhent á tímabilinu 28.-30. janúar með rafrænum hætti á netfang sem fjárfestar tilgreina í trúnaðaryfirlýsingu.

Gert er ráð fyrir að óskuldbindandi tilboðum sé skilað til Nýja Glitnis miðvikudaginn 4. febrúar 2009. Þeim fjárfestum, sem leggja fram hæstu tilboðin, verður boðið til áframhaldandi þátttöku í söluferlinu og fá þá drög að kaupsamningi. Þá fá fjárfestar aðgang að nánari upplýsingum um starfsemi og fjárhag fyrirtækisins, en þeim ber svo að skila inn skuldbindandi tilboðum í síðasta lagi þriðjudaginn 17. febrúar,“ segir í tilkynningunni.

,,Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum hafa nokkrir aðilar sýnt félaginu mikinn áhuga. Með þessu eru Árvakur og Nýi Glitnir að setja málið í ferli þar sem allir sitja við sama borð. Vonir standa til þess að öflugir aðilar, sem geta styrkt stöðu Árvakurs til framtíðar, komi að félaginu,„ segir Einar Örn Ólafsson, forstöðumaður Fyrirtækjaráðgjafar Nýja Glitnis.

Tengt efni

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX