amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Fimmtudagurinn 17. maí 2012 - 14:19
 
Frétt birtist 26. janúar 2009 klukkan 17:01

Tóbaksfjölskylda kaupir hlut í B&O

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Danska hljómtækja- og tæknifyrirtækið Bang & Olufsen (B&O) hefur fundið mjög fyrir samdrætti vegna efnahagskreppunnar enda framleiðsla fyrirtækisins dýr lúxusvarningur. Það er þó huggun harmi gegn að hinn auðugi danski sjóður, Færchfonden frá Holsterbrú, eygir ljós í rekstri fyrirtækisins því hann hefur ákveðið að kaupa 5,1% hlut í fyrirtækinu, að því er Börsen greinir frá. Þar kemur fram að Færchfonden er þekktur sem fyrrverandi hlutaeigandi Skandinavisk Tobakskompagni. Sjóðirinn kaupir hlutinn í B&O með fyrirtæki tóbaksfjölskyldunnar, Færchplast.

Kaupunum fylgir 2,8%& atkvæðisréttur en sjóðurinn kaupir 616.000 svokölluð B-hlutabréf í B&O. Jørgen Worning, stjórnarformaður B&O, segir að kaupverð á hlut vera 68,50 danskar krónur. Heildarverðið sem sjóðurinn borgar er því 42,2 milljónir danskra króna, eða rúmar 900 milljónir króna.

Rætt er um að sjóðurinn kaupi bréfin í B&O ódýrt en þó reikna margir sérfræðingar frekar með því að þau eigi enn eftir að lækka í verði. Hlutabréf í fyrirtækinu hafa fallið um þriðjung frá því í september og um þrjá fjórðu sé litið ár aftur í tímann.

Bréfin sem Færchfonden kaupir voru áður eigin bréf Bang & Olufsen.

FL Group keypti í febrúar árið 2006 rúmlega 8% hlut í B&O. Þá var tilkynnt að markaðsverðmæti þess hlutar væri um 7,5 milljarðar íslenskra króna. Mánuði síðar var tilkynnt að FL hefði aukið sinn hlut í 10.1%. Lokagengi bréfa Bang & Olufsen var 765 danskar krónur þegar fyrstu kaupin voru gerð. Gengið lækkaði nokkuð eftir það og var 746 danskar krónur í lok 7. mars þegar greint var frá auknum hlut, að því er fram kemur í bók Óla Björns Kárasonar, Stoðir FL bresta. Þar kemur fram að rúmu ári eftir að FL keypti fyrstu hlutabréfin í Bang & Olufsen seldi það bréfin með um 110 milljóna króna tapi. Gengi bréfanna var þá komið niður í 700 danskar krónur á hlut.

Fall hlutabréfa B&O frá þeim tíma sést vel þegar litið er til kaupverð tóbaksfjölskyldunnar nú, en það er innan við tíundi hluti af því sem það var þegar FL seldi.

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2012 - - RSS - Um AMX