
Sókn fjárfesta í ríkistryggð skuldabréf er mikil þessa dagana, hvort sem um er að ræða skammtímapappíra eða langtímabréf. Sér í lagi virðist endurkoma ríkisvíxla inn á markað hafa verið vel til fundin, ef marka má viðbrögð á markaði. Viðtökur voru ágætar yfir það heila í útboðum Seðlabankans á ríkisskuldabréfum á föstudag, segir Greining Glitnis.
Þar segir síðan:
„Eftirspurn eftir 3ja mánaða ríkisvíxlum reyndist nærri tvöföld miðað við áætlað framboð. Var tekið tilboðum fyrir 30 ma.kr., líkt og stefnt hafði verið að, og voru flatir meðalvextir í útboðinu 15,43%. Hlýtur það að teljast vel ásættanlegt fyrir ríkissjóð, enda nokkru lægri vextir en í desemberútboði Seðlabankans.
Áhugi fjárfesta á útboði ríkisbréfa á föstudag voru nokkuð mismunandi eftir flokkum. Þannig reyndist áhugi á tveggja ára ríkisbréfunum RIKB 10 1210 fremur takmarkaður. Alls bárust tilboð að fjárhæð 9,2 ma.kr. í flokkinn og var tilboðum tekið fyrir ríflega 6,3 ma.kr., en áætlað hafði verið að taka tilboðum fyrir allt að 10 ma.kr. í þessum flokki. Kemur dræmur áhugi nokkuð á óvart, enda höfðu viðskipti með flokkinn verið lífleg dagana á undan og krafa hans lækkað verulega. Betur farnaðist í útboði lengstu ríkisbréfaflokkanna tveggja, RIKB 13 og RIKB 19. Þar var tilboðum tekið fyrir tæplega 10 ma.kr., í samræmi við áætlun Seðlabankans fyrir útboðið, þar af í fyrrnefnda flokknum fyrir 3,6 ma.kr. en fyrir 6,3 ma.kr. í þeim síðarnefnda. Ávöxtunarkrafa tekinna tilboða var 10,7% fyrir RIKB 13 en 9,59% fyrir RIKB 19.
Svo virðist sem erlendir fjárfestar hafi helst sótt í víxlana í föstudagsútboðum Seðlabanka, á meðan innlendir fjárfestar hafi heldur litið til lengri ríkisbréfaflokkanna. Það sem af er ári hefur stutti endi óverðtryggða vaxtaferilsins lækkað töluvert, en krafa lengstu flokkanna breyst mun minna, og er ferillinn því nokkuð flatari nú en í upphafi árs. Ef marka má lögun ferilsins búast fjárfestar við hraðri vaxtalækkun á árinu, en vert er að hafa í huga að markaðsaðstæður eru mjög sérstakar þessa dagana og þarf því að taka slíkri túlkun með talsverðum fyrirvara.“
Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum
Sífellt harðari gjaldeyrisreglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.