amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Fimmtudagurinn 17. maí 2012 - 14:17
 
Frétt birtist 22. janúar 2009 klukkan 07:38

Erlendir fjárfestar vilja Moggann

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Ed
Morgunblaðshúsið í Hádegismóum

Tveir erlendir fjárfestar, Steve Cosser og Everhard Vissers, hafa gert formlegt tilboð í Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins, að því er blaðið greinir sjálft frá í morgun. Annar þeirra segir í samtali við blaðið að Árvakur sé ein margra fjárfestinga sem þeir hafi áhuga á hér á landi.

Steve Cosser, sem er ástralskur að uppruna en býr í Bretlandi, er að sögn Morgunblaðsins með mikla fjölmiðlareynslu jafnt sem fréttamaður og fjárfestir:

„Ég hef haft áhuga á fjölmiðlum frá því ég var strákur og við teljum að Morgunblaðið sé vel rekinn miðill. Við erum þó líklega einu tveir bjánarnir í heiminum sem myndu hugleiða að kaupa dagblað sem þeir geta ekki lesið.“

Everhard Vissers er hollenskur en hann og Cosser hafa verið í samstarfi í fjárfestingum í námuvinnslu Suður-Afríku og Mósambík. Saman stofnuðu þeir Southern Mining Corporation, sem var selt ástralska námafyrirtækinu Western Mining Corp. fyrir 200 milljónir Ástralíudollara.

Morgunblaðið hefur það eftir Cossers að í framtíðinni séu þeir félagar reiðubúnir að breikka eignarhald félagsins. Þeir hyggjast ekki gera breytingar á stjórn eða stefnu Morgunblaðsins. ---

„Við skiljum ekki einu sinni það sem stendur í blaðinu og ætlum ekki að skipta okkur af því. Okkur finnst ritstjórnarlegt sjálfstæði mikilvægast og á því þarf Ísland nú að halda.“

Að sögn Morgunblaðsins hafa þeir gert Glitni tilboð sem miðast við að allar veðskuldir Árvakurs verði greiddar.

Tengt efni

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2012 - - RSS - Um AMX