
„Við höfum kynnt félagið og stöðu þess fyrir þeim sem sýnt hafa starfseminni áhuga og þessir aðilar þurfa síðan að eiga viðræður við Nýja Glitni í framhaldinu. Ég geri ráð fyrir að það verði 2 til 4 hópar sem taki málið lengra. Markmiðið var að ná inn nýjum fjárfestum fyrir áramót en ýmislegt setti þær áætlanir úr skorðum. Við gerum ráð fyrir að við sjáum til lands í málinu um miðjan janúar,“ segir Einar Sigurðsson, forstjóri Árvakurs um fjárhagslega endurskipulagningu félagsins í frétt á mbl.is. Ætlunin er, segir þar, að afla eins milljarðs króna í nýtt hlutafé. Einar segir samvinnu við Fréttablaðið um prentun og dreifingu vonandi komast á í febrúar.
Síðan segir í mbl. fréttinni:
„Um mánaðamótin nóvember - desember kynntu forsvarsmenn Árvakurs að félagið ætlaði að leita nýs hlutafjár. Þetta var gert í samráði við viðskiptabanka Árvakurs, Glitni. Hluti af því ferli og í raun forsenda endurskipulagningar, var að eldri hluthafar, afskrifuðu allt sitt hlutafé í félaginu. Endurfjármögnun félagsins snýst því fyrst og fremst um að tryggja áfram hnökralausa útgáfu og verja hagsmuni lánardrottna.
Tæplega 20 aðilar, höfðu samband við stjórnendur Árvakurs þegar áformin voru kynnt og var rætt við alla og staða félagsins kynnt skömmu fyrir jól. Nú eru horfur á að 2 til 4 hópar taki málið lengra í viðræðum við Glitni.
Skuldir Árvakurs um áramót voru rúmlega 4 milljarðar króna. Lán hjá Glitni vegna prentsmiðju stóð í 2.760 milljónum króna og önnur veðlán hjá Glitni í 444 milljónum króna. Þá stóðu fjárfestingar- og rekstrarlán Glitnis til Árvakurs í 332 milljónum króna um áramót og sambærilegt lán Landsbankans til Árvakurs stóð í 897 milljónum.
Öll hafa þessi lán gengistryggingar og hafa því hækkað gríðarlega í kjölfar veikingar krónunnar. Sem dæmi þá nam lán Landsbankans upphaflega um 450 milljónum en stóð í desember í 897 milljónum króna.
Einar Sigurðsson segist sannfærður um að Árvakur eigi veruleg sóknarfæri. Skuldsetningin sé hins vegar erfið og skortur á lausafé hamli sókn.
Starfsemi 24 stunda er komin út úr rekstri Árvakurs og launagreiðslum starfsmanna á uppsagnarfresti lýkur í janúar. Aðgerðir til lækkunar kostnaðar eru komnar til framkvæmda en á síðustu tveimur til þremur árum hefur stöðugildum fækkað um rúmlega 80 og launakostnaður dregist saman um 600 milljónir króna á tímabilinu.
Í upphaflegri áætlun fyrir árið 2008 var gert ráð fyrir að EBITDA eða hagnaður fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir, yrði 340 milljónir króna. Mikil áföll urðu hins vegar í tekjumyndun, verulegur samdráttur varð á auglýsingamarkaði og umtalsverður kostnaður féll til á síðasta ársfjórðungi vegna þess að félagið hætti starfsemi 24 stunda. EBITDA ársins 2008 verður því að líkindum neikvæð um á sjötta hundrað milljónir króna. EBITDA ársins 2009 var upphaflega áætluð um 270 milljónir króna en hún mun væntanlega verða eitthvað lægri vegna tafa á sameiningu prentstarfsemi og dreifingar með Fréttablaðinu.
„Ég vona að við getum klárað það mál í febrúar. Öll töf á því er mjög dýr fyrir bæði félögin,“ segir Einar Sigurðsson, á mbl.is.
Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum
Sífellt harðari gjaldeyrisreglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.