
Flestir framkvæmdastjórar Gamla Glitnis og Kaupþings sem sagt var upp í kjölfar bankahrunsins ætla í mál við bankana vegna vangoldinna launa, að því er fram kom í fréttum Ríkisútvarpsins.
Þar sagði enn fremur:
„Fulltrúar skiptaráðenda bankanna telja að framkvæmdastjórarnir eigi ekki rétt á kröfum í þrotabú bankanna. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu ætla þeir framkvæmdastjórar sem ekki hafa fengið sinn uppsagnafrest greiddan að höfða prófmál á hendur gömlu bönkunum til þess að freista þess að fá laun sín greidd. Það gæti hins vegar tekið sinn tíma því lögsóknir gegn þrotabúum bankanna eru óheimilar næstu tvö ár.
Launakröfur eru allajafna forgangskröfur í þrotabú. Æðstu stjórnendur eiga hins vegar ekki rétt á slíkum forgangi samkvæmt lögum um gjaldþrotaskipti. Lárus Welding var á sínum tíma skráður í hlutafélagaskrá sem framkvæmdastjóri Glitnis og Hreiðar Már Sigurðsson var skráður framkvæmdastjóri Kaupþings. Þeir eiga því ekki forgangskröfu í þrotabú bankanna. Fulltrúar skiptaráðenda gamla Glitnis og Kaupþings hafa nú ákveðið að næstráðendur í bönkunum eða flest allir framkvæmdastjórar eigi heldur ekki forgangskröfur í þrotabú gömlu bankanna. Þeir fá því ekki uppsagnafrest sinn greiddan. Ólafur Garðarsson fulltrúi skiptaráðanda hjá Kaupþingi segir skýrt í lögum að stjórnarmenn og framkvæmdastjórar gömlu bankanna eigi ekki rétt til launa. Hins vegar hafi tveir af sex framkvæmdastjórum gamla bankans fengið uppsagnafrest sinn greiddan því þeir hafi haft lítil sem engin áhrif á stefnu gamla Kaupþings,“ segir í frétt RÚV.
Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum
Sífellt harðari gjaldeyrisreglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.