amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Fimmtudagurinn 17. maí 2012 - 14:15
 
Frétt birtist 6. janúar 2009 klukkan 11:47

Árvakursmenn telja að umskipti verði á afkomunni á þessu ári

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Ed
Morgunblaðshúsið í Hádegismóum

Forráðamenn Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins, gera ráð fyrir að áskriftatekjur blaðsins nemi 1.285 milljónum króna á þessu ári og að auglýsingatekjur verði um 1.400 milljónir króna. Alls verða því tekjur af útgáfu Morgunblaðsins og mbl.is um 2.685 milljónir króna, gangi áætlanir eftir. Með því að annast prentun Fréttablaðsins og samnýtingu dagblaða í dreifingu, gera áætlanir ráð fyrir að EBITDA hagnaður félagsins verði 270 milljónir króna á þessu ári sem er viðsnúningur upp á 840 milljónir frá síðasta ári.

Þessar upplýsingar koma fram í trúnaðargögnum sem DV birti í morgun og kynnt hafa verið hugsanlegum fjárfestum að Árvakri.

Ein forsenda áætlunar fyrir nýtt ár er að prentun Fréttablaðsins færist yfir í Landsprent, dótturfélag Árvakurs. Þá er einnig reiknað með að dreifikerfi Morgunblaðsins verði sameinað Pósthúsinu ehf. sem verði í 50% eigu Árvakurs. Pósthúsið muni síðan annast alla dagblaðadreifingu hér á landi.

Á undanförnum mánuðum hefur verið unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu Árvakurs en samkvæmt áðurnefndum trúnaðargögnum nema skuldir félagsins 4.433 milljónum króna. Þar af eru 2.760 milljónir veðskuldir vegna prentsmiðju félagsins, en tæpar 900 milljónir eru lán frá Landsbanka, með ábyrgð eignarhaldsfélaga hluthafa. Allt hlutafé Árvakurs hefur verið afskrifað en sótt er eftir 1.000 milljónum króna frá nýjum fjárfestum. Forráðamenn félagsins telja að 450 milljónir króna þurfi í lausafé til að tryggja útgáfuna á komandi mánuðum.

Nýi Glitnir annast sölu á nýju hlutafé.

Tengt efni

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2012 - - RSS - Um AMX