
Bandaríski stórfjárfestirinn og svindlarinn Bernard Madoff var virkur á fjárfestingamarkaði alveg þar til svikamylla hans hrundi eins og spilaborg í desember síðastliðnum, að því er danska viðskiptablaðið Börsen greinir frá. Í ljós hefur komið við rannsókn málsins að hann tók á móti 10 milljónum dollara aðeins sex dögum áður en upp komst um stórkostleg fjársvik hans en þau eru talin nema um 50 milljörðum dollara.
Í þessu tilfelli er það enn einn fjölskyldusjóðurinn sem fer illa á svikaranum. Fjölskyldan Roseman gerir nú kröfur á Madoff, eða öllu heldur þrotabú hans, um endurgreiðslu þessara 10 milljóna dollara á þeirri forsendu að ekki hefði átt að notað fjármagnið fyrr en eftir 1. Janúar 2009.
Madoff hafði fengið fyrirsvarsmann fjölskyldunnar, Martin Roseman, til þess að leggja peningana inn á sinn reikning þar til þeir yrðu nýttir til fjárfestingar. „Madoff sagði að sjóðurinn væri lokaður fram til 1. janúar en Roseman gæti lagt peningana inn hjá sér,“ segir m.a. í kröfunni á þrotabúið.
Madoff mun hafa sent kvittun um að peningarnir hefðu verið nýttir til kaupa ríkisbréfa en í ljós kom að kvittunin var fölsuð. Madoff hélt hins vegar þessum 10 milljónum dollara en degi síðar viðurkenndi hann svik sín fyrir sonum sínum. Það leiddi til handtöku hans. Madoff gengur nú laus gegn tryggingu.
Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum
Sífellt harðari gjaldeyrisreglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.