amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Fimmtudagurinn 17. maí 2012 - 14:10
 
Frétt birtist 2. janúar 2009 klukkan 10:50

Bílarnir sem Danir vildu ekki árið 2008

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Midorisyu
Sala nýrra bíla hefur dregist saman í Danmörku ekki síður en hér á landi. Sumir bílar eru þó óvinsælli en aðrir.

Það er ekkert launungarmál, segir Börsen, að bílasala í Danmörku var dræm árið 2008. Gildir hið sama þar í landi sem á Íslandi. Nokkrar tegundir fara þó verr út úr samdrættinum en aðrar, skrifar viðskiptablaðið. Samband bílainnflytjenda hefur tekið saman yfirlit yfir óvinsælustu nýju bílana sem í boði voru, þ.e. þá sem seldust í undir 20 eintökum. Rétt er að hafa í huga að Danir hafa annan smekk á bílum en Íslendingar og skattaálögur eru aðrar en hér. Jeppagleði Íslendinga er t.d. alkunn en Danir sem kaupa dýra jeppa taka þá gjarnan sem vaskbíla á gulum númerum. Í þeim bílum má aðeins vera einn farþegi auk bílstjóra. Aftursætin eru því fjarlægð. Raunar eru enn minni not fyrir jeppa á sléttlendi Danmerkur en í Breiðholti og nágrenni.

Óvinsælasti bíllinn sem í boði var í Danaveldi á nýliðnu ári var Citroën C2. Aðeins tveir kaupendur höfðu smekk fyrir sítrónunni. Af Alfa Romeo 147 seldust aðeins sex bílar. Sama gildir um Fiat Multipla. Sex féllu fyrir honum. Eitthvað er glansinn farinn af hinni svokölluðu nýju bjöllu frá Volkswagen. Aðeins 11 Dönum þótti bjallan smart.

Í frétt Börsen er þess getið að andúð á „2007 lífsstíl“ svokölluðum hafi bitnað á fjórhjóladrifs bílum sem áður voru vinsælir. Þar er nefndur til sögunnar Hyundai Santa Fe jepplingurinn. Tíu Danir fjárfestu í slíkum grip, þ.e. á hvítum númerum og gátu þar með tekið fjölskylduna með í bíltúrinn.

Hugsanlegt er að einhverjir hafi splæst í jepplinginn á gulum númerum og skilji krakkana eftir heima ef ferðinni er heitið á Himmelbjerget.

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2012 - - RSS - Um AMX