amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Fimmtudagurinn 17. maí 2012 - 14:10
 
Frétt birtist 2. janúar 2009 klukkan 12:17

Einkaþota Hannesar Smárasonar til sölu

Ásett verð í kringum 2,5 milljarða og vélin laus til afhendingar strax

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Controller
Challenger 604 þota Hannesar Smárasonar er nú til sölu fyrir 2,5 milljarða samkvæmt heimildum AMX.

Einkaþota Hannesar Smárasonar, fyrrum forstjóra FL Group (nú Stoðir), er komin á sölu hjá einkaþotumiðlara í Bretlandi. Vélin er árgerð 2002 af gerðinni Bombardier Challenger 604. Verð er ekki gefið upp en samkvæmt heimildum AMX er ásett verð í kringum 20 milljónir dollara eða 2,4 milljarða miðað við að hver bandaríkjadalur kosti 121 krónu.

Vélin, sem tekur 14 farþega í sæti, er staðsett á Farnborough flugvellinum í Bretlandi og býður þar nýrra eigenda. Hún er sögð í sölulýsingu vera fullbúin hvers kyns þægindum, eigi að baki rúmar 1500 lendingar og geti flogið með eigendur sína um allan heim. Þá er vélin sögð sérstaklega sparneytin og hagkvæm í rekstri.

Controller
Innviðir þótunnar eru hinir glæsilegustu en vélin tekur 14 farþega í sæti.

Vélin brennir 1.230 lítrum af þotueldsneyti á klukkustund. Verð á þotueldsneyti er 118 kr/ltr. sem þýðir að eldsneyti á vélina kostar tæpar 800.000 krónur til London, fram og til baka. Vélinni má ekki fljúga nema tveir flugmenn séu við stjórntækin.

Leigði vélina til FL Group

Á aðalfundi FL Group í mars á liðnu ári kom fram að Hannes Smárason leigði einkaþotu sína og hafði FL afnot af þotunni. Jón Ásgeir Jóhannesson, þáverandi stjórnarformaður félagsins, greindi frá því að árið 2007 hafi FL Group greitt 94 milljónir króna vegna „flugþjónustu“ til félags Hannesar vegna afnota á einþotunni, sem nú hefur verið sett á söluskrá.

Sjá má umfjöllun um þessa þotu auk annarra einkaþotna í íslenskri eigu í Brennipunkti hér á AMX.

Tengt efni

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2012 - - RSS - Um AMX