amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Laugardagurinn 13. mars 2010 - 18:18
 
Frétt birtist 2. febrúar 2010 klukkan 17:49

Jónas Fr. vísar ásökunum um lygar starfsmanna FME á bug

 
 
 
 
Eftir Einar Kristinn Guðfinnsson Pistill

Aldrei brugðist vondum málstað

Þórólfur Matthíasson prófessor kvartar undan því að vera sagður ganga erinda erlendra þjóða. Þarna er prófessorinn að vísa til þess að Eva Joly ráðgjafi sérstaks saksóknara í bankahruninu skrifaði harðorða grein í Morgunblaðið og Aftenposten í Noregi til þess að svara dæmalaust vitlausri grein eftir prófessorinn í síðar­nefnda blaðinu.

 
Mest lesið
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Jónas Fr. Jónsson, fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins.

Starfsmenn Fjármálaeftirlitins gáfu þær upplýsingar um fjárhag Landsbankans sem þeir töldu réttar hverju sinni byggðar á fyrirliggjandi gögnum frá bankanum og hálfsársuppgjöri 2008, árituðu af endurskoðendum bankans. Ásökunum um lygar starfsmanna Fjármálaeftirlitsins er vísað á bug, segir í yfirlýsingu Jónasar Fr. Jónssonar, fv. forstjóra Fjármálaeftirlitsins.

Yfirlýsing Jónasar fer hér á eftir:

Yfirlýsing vegna ummæla fyrir hollenskri þingnefnd

Starfsmenn Fjármálaeftirlitins gáfu þær upplýsingar um fjárhag Landsbankans sem þeir töldu réttar hverju sinni byggðar á fyrirliggjandi gögnum frá bankanum og hálfsársuppgjöri 2008, árituðu af endurskoðendum bankans. Ásökunum um lygar starfsmanna Fjármálaeftirlitsins er vísað á bug, en þar lagði fólk sig fram um að sinna starfi sínu af fagmennsku og heiðarleika.

Útibú Landsbankans í Hollandi hóf starfsemi sína á árinu 2006. Útibúið bauð innlánsreikninga fyrir almenna sparifjáreigendur vorið 2008 eftir að hafa fengið grænt ljós frá hollenskum yfirvöldum í kjölfar samninga tryggingasjóða innistæðueigenda í báðum löndum. Samkvæmt Evrópureglum fóru hollensk yfirvöld með eftirlit með neytendavernd og lausafé útibúsins, auk ýmissa annarra heimilda ef nauðsyn krefði.

Í viðræðum við Hollendinga í ágúst og september 2008 var rætt um að Landsbankinn setti upp varasjóð í Hollandi. Tillagan var ekki afgreidd af hálfu Hollendinga. Hefði það verið gert hefði sjóðurinn getað numið hátt í 600 milljónum Evra þegar bankinn féll. Hefði þar munað um minna.

Enginn sá fyrir þær einstæðu fjármálahamfarir sem urðu í heiminum í lok september og byrjun október 2008. Í Hollandi þurfti að þjóðnýta Fortis banka, ING bankinn þurfti verulega fjárhagsaðstoð frá ríkinu og smærri fjármálaþjónustufyrirtæki s.s. Aegon og SNS fengu ríkisaðstoð, auk almennra aðgerða. Haustið 2009 féll DSB bankinn. Embættismenn í Hollandi vilja beina athyglinni frá þessum heimavanda með yfirlýsingum og hörku gagnvart Íslendingum um Icesave.

Jónas Fr. Jónsson

 
Fleiri fréttir

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

Capacent vinnur verkefni fyrir Alþjóða­bankann

Fjármögnun á vörudreifingu eða Supply Chain Financing (SCF) getur verið heppilegur stuðningur við framleiðendur í þróunarríkjum sem vilja koma afurðum sínum á alþjóðlegan markað. Þetta er meðal niðurstaðna í könnun sem Capacent hefur unnið fyrir International Finance Corporation, sem er sú eining Alþjóða­bankans, eða World Bank Group í Washington, er sinnir stuðningi við einka­fyrirtæki í þróunarríkjum.

 
 
©2010 Straumröst ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX