
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Úrskurðurinn féll á þriðja tímanum í dag, að því er Vísir greinir frá.
Þar segir enn fremur:
„Samkeppniseftirlitið komst að þeirri niðurstöðu árið 2004 að flugfélagið hefði misnotað markaðsráðandi stöðu með því að bjóða upp á netsmelli til Kaupmannahafnar og Lundúna. Þá var Icelandexpress einnig á ferðamarkaði.
Samkeppniseftirlitið komst í fyrstu að þeirri niðurstöðu að Icelandair skyldu greiða 190 milljónir króna í stjórnvaldssekt fyrir brot sitt. Icelandair áfrýjaði þeim úrskurði til áfrýjunarnefndar Samkeppniseftirlitsins sem lækkaði sektina niður í 130 milljónir króna.
Þá stefndi Icelandair Samkeppniseftirlitinu fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur sem úrskurðaði í dag að flugfyrirtækið hefði gerst sekt um að misnota markaðsráðandi stöðu sína. Aftur á móti var sektin felld niður.“
Í annarri frétt Vísis segir:
„Upplýsingafulltrúi Icelandair, Guðjón Arngrímsson, segir það fagnaðarefni að stjórnvaldssekt upp á 130 milljónir króna hafi verið felld niður í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Sektina hlaut fyrirtækið upprunalega fyrir að brjóta gegn samkeppnislögum með því að misnota markaðsráðandi stöðu sína gagnvart flugfélaginu Icelandexpress.
Icelandair er þegar búið að greiða sektina en hún verður endurgreidd félaginu samkvæmt niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur. Þar segir ennfremur að sektin sé úr takti við brotið og því ekki forsvaranlegt að sekta félagið um svo háa sekt.
Upprunalega var fyrirtækið dæmt til þess að greiða 190 milljónir króna. Því var áfrýjað og þá var sektin lækkuð niður í 130 milljónir. Það var árið 2004. Nú, sex árum síðar, komast dómstólar að því að sektin hafi ekki verið réttmæt.
„Það er ánægjulegt að þeir hafi fallist á þetta en samt umhugsunarefni hversu langan tíma og mikla fyrirhöfn það tók hinsvegar,“ segir Guðjón um sex ára baráttu fyrirtækisins. Þess má geta að úrskurður Samkeppniseftirlitsins er óbreyttur að öðru leytinu til.“
Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum
Sífellt harðari gjaldeyrisreglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.
Capacent vinnur verkefni fyrir Alþjóðabankann
Fjármögnun á vörudreifingu eða Supply Chain Financing (SCF) getur verið heppilegur stuðningur við framleiðendur í þróunarríkjum sem vilja koma afurðum sínum á alþjóðlegan markað. Þetta er meðal niðurstaðna í könnun sem Capacent hefur unnið fyrir International Finance Corporation, sem er sú eining Alþjóðabankans, eða World Bank Group í Washington, er sinnir stuðningi við einkafyrirtæki í þróunarríkjum.