amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Laugardagurinn 18. maí 2013 - 15:27
 
Frétt birtist 2. febrúar 2010 klukkan 16:16

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Sigurður Bogi
Einar Sigurðsson.

Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar, að því er fram kemur í tilkynningu vegna forstjóraskiptanna.

Þar segir enn fremur:

Magnús Ólafsson hóf störf hjá Mjólkurstöðinni í Reykjavík árið 1961 og hefur unnið nánast óslitið fyrir mjólkuriðnaðinn síðan. Hann er mjólkurfræðingur að mennt og hefur gengt ýmsum trúnaðarstörfum og tekið þátt í margvíslegum þróunarverkefnum sem tengjast uppbyggingu mjólkuriðnaðins hér á landi. Að loknu námi starfaði hann hjá Mjólkursamlagi KEA á Akureyri og síðan hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur. Þá lá leið hans til Mjólkurstöðvarinnar í Reykjavík þar sem hann var verkstjóri þar til hann varð framkvæmdastjóra Emmess ís árið 1980. Hann tók við starfi forstjóra Osta- og smjörsölunnar árið 2000 þar til starfsemin var sameinuð Mjólkursamsölunni í árslok 2006. Þá varð Magnús aðstoðarforstjóri og síðan forstjóri Mjólkursamsölunnar og forstjóri Auðhumlu.

Einar Sigurðsson tók við starfi forstjóra Mjólkursamsölunnar 1. maí á síðasta ári. Hann hafði verið forstjóri Árvakurs í tvö og hálft ár og framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Capacent þar á undan. Um 17 ára skeið var hann starfsmaður Flugleiða síðustu átta árin framkvæmdastjóri stefnumótunar- og stjórnunarsviðs. Einar er með mastersgráðu í stjórnmálafélagsfræði frá London School of Economics og BA gráðu í fjölmiðlafræði. Hann starfaði að námi loknu sem fréttamaður hjá Ríkisútvarpinu, hljóðvarpi og sjónvarpi, og var fyrsti útvarpsstjóri Íslenska útvarpsfélagsins og leiddi þar uppbyggingu útvarpsstöðvarinnar Bylgjunnar.

Stjórn Auðhumlu þakkar Magnúsi óeigingjarnt og fórnfúst starf fyrir mjólkuriðnaðinn síðustu áratugina og bíður Einar velkominn til starfa.„

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

Capacent vinnur verkefni fyrir Alþjóða­bankann

Fjármögnun á vörudreifingu eða Supply Chain Financing (SCF) getur verið heppilegur stuðningur við framleiðendur í þróunarríkjum sem vilja koma afurðum sínum á alþjóðlegan markað. Þetta er meðal niðurstaðna í könnun sem Capacent hefur unnið fyrir International Finance Corporation, sem er sú eining Alþjóða­bankans, eða World Bank Group í Washington, er sinnir stuðningi við einka­fyrirtæki í þróunarríkjum.

 
 
©2013 - - RSS - Um AMX