amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Föstudagurinn 24. maí 2013 - 07:48
 
Frétt birtist 2. febrúar 2010 klukkan 16:13

Capacent vinnur verkefni fyrir Alþjóða­bankann

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Fjármögnun á vörudreifingu eða Supply Chain Financing (SCF) getur verið heppilegur stuðningur við framleiðendur í þróunarríkjum sem vilja koma afurðum sínum á alþjóðlegan markað.

Þetta er meðal niðurstaðna í könnun sem Capacent hefur unnið fyrir International Finance Corporation, sem er sú eining Alþjóðabankans, eða World Bank Group í Washington, er sinnir stuðningi við einkafyrirtæki í þróunarríkjum, að því er fram kemur í tilkynningu Capacent.

Þar segir enn fremur:

„Að loknu alþjóðlegu útboði á síðasta ári ákvað IFC að taka tilboði Capacent í ráðgjöf vegna vörudreifingarfjármögnunar.

Capacent vann í kjölfarið alþjóðlega könnun á markaðsþróun og bestu starfsháttum (best practices) á sviði SCF. Könnunin ber heitið Global Supply Chain Financing Market Study og eru aðstæður í Bangladesh, Brasilíu, Gvatemala, Indónesíu, Rúmeníu, Tyrklandi og Víetnam þar skoðaðar sérstaklega og lagt mat á jafnt þörfina fyrir sem áhugann á vörudreifingarfjármögnun.

Markmið könnunarinnar var að geta í framhaldinu lagt mat á hversu vel SCF hentar sem tæki fyrir Alþjóðabankann til að efla útflutning þróunarríkja.

Vinnu við könnunina lauk í nóvember á síðasta ári og í ljósi niðurstaðna hennar ákvað IFC að gera áframhaldandi samning við Capacent um frekari úrvinnslu á niðurstöðunum og eftirfylgni þeirra.

Hefur Capacent verið falið að þróa tillögur um hvernig IFC geti beitt vörudreifingarfjármögnun í auknum mæli til að styðja við fyrirtæki í þróunarríkjum, sem selja framleiðslu sína til stórfyrirtækja í Evrópu, Bandaríkjunum og Japan.

„Það er mikil viðurkenning fyrir Capacent að Alþjóðabankinn skuli hafa valið okkur sem samstarfsaðila í þessu verkefni og sýnir að Capacent hefur tryggt sér stöðu sem leiðandi fyrirtæki á sviði rannsókna og ráðgjafar á Norðurlöndunum. Þetta er mjög spennandi og heillandi verkefni og við vonum að niðurstöður þessarar vinnu muni gagnast Alþjóðabankanum vel í stuðningi við fyrirtæki í þróunarríkjunum,“ segir Skúli Gunnsteinsson, forstjóri Capacent International.“

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2013 - - RSS - Um AMX