
Skuldatryggingarálag ríkissjóðs til fimm ára hefur hækkað um 260 punkt það sem af er ári og er nú álíka hátt og um mitt síðasta ár (673 punktar). Hækkun álagsins endurspeglar væntanlega meðal annars vaxandi áhyggjur af því að ríkissjóður kunni að lenda í greiðslufalli á næstu árum. Í því sambandi er athyglisvert að þótt álagið til 5 ára, sem oftast er notað til samanburðar, sé þannig svipað og í júlí í fyrra er skuldatryggingarálag á ríkissjóð til eins árs (910 punktar) mun hærra en þá var, og meira í líkingu við stöðuna fyrir ári síðan. Fjárfestar telja þannig töluverðar líkur á að til greiðslufalls kunni að koma innan árs, segir Greining Íslandsbanka.
Þar segir enn fremur:
Litlar líkur á greiðslufalli næsta árið
„Ef litið er yfir erlendar skuldbindingar ríkissjóðs má þó segja að erfitt sé að rökstyðja slíka bölsýni hvað varðar næstu 12 mánuði. Samkvæmt Markaðsupplýsingum Lánamála ríkisins námu erlendar skuldir ríkissjóðs alls jafnvirði 357 ma.kr. um síðustu áramót. Af þeim skuldum er ekkert á lokagjalddaga á þessu ári og þarf ríkissjóður því aðeins að standa skil á vaxtagjöldum, sem gróflega má áætla að séu upp undir 20 ma.kr. Árið 2011 eru lokagjalddagar á tveimur stórum erlendum skuldbindingum ríkissjóðs. Annars vegar er þar um að ræða sambankalán að fjárhæð 300 m. evra, sem greiða á í september og hins vegar skuldabréf að fjárhæð 1 ma. evra sem fellur á gjalddaga í desember. Auk heldur þarf vitaskuld að greiða vexti af þessum og öðrum skuldbindingum. Ef ekki fæst frekara lánsfé inn í gjaldeyrisforða Seðlabankans gæti hann því verið orðinn nokkuð smár eftir þessar greiðslur. Það er hins vegar tæpast fyrr en í apríl 2012, þegar skuldabréf að fjárhæð 250 m. evra er á gjalddaga, sem gjaldeyrisforðinn kynni að verða þurrausinn, jafnvel þótt ekki takist að afla neins frekari gjaldeyris inn í hann.
Áhrif af skuldum Landsvirkjunar
Auk ríkissjóðs sjálfs er Landsvirkjun eini lántakandinn með ríkisábyrgð sem ber umtalsverðar erlendar skuldir, eftir því sem næst verður komist. Fyrirtækið skuldaði tæplega 2,6 ma. Bandaríkjadollara (330 ma.kr.) í erlendum myntum um mitt síðasta ár, mest í evrum og dollurum. Afborganir þeirra skulda dreifast hins vegar nokkuð jafnt á næstu árin, ef marka má árshlutareikning fyrirtækisins. Þannig er jafnvirði 282 m. dollara á gjalddaga á næsta ári og 201 m. dollara falla á gjalddaga árið 2012, auk vaxtagreiðslna. Landsvirkjun hefur aðgang að allt að 300 m. Bandaríkjadollara úr gjaldeyrisforða Seðlabankans samkvæmt sérstökum viðbúnaðarsamningi sem gerður var í fyrrasumar. Sjóðstreymi fyrirtækisins hefur hins vegar að líkindum batnað töluvert frá fyrri hluta síðasta árs sakir þess hversu álverð hefur hækkað á erlendum mörkuðum, auk þess sem Landsvirkjunar kveðst vera vel í sveit sett hvað lausafé varðar miðað við nýlega frétt á vef fyrirtækisins, þar sem fram kemur að lausafé, veltilán og sjóðstreymi samanlagt eigi að duga fyrir öllum skuldbindingum fram til ársins 2012.“
Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum
Sífellt harðari gjaldeyrisreglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.