
Rannveig Rist hefur tekið við formennsku í stjórn Skipta hf. Þetta var ákveðið á fundi stjórnar Skipta fyrr í dag. Með formennsku Rannveigar er tryggð samfelldni í stjórn fyrirtækisins en hún hefur mikla reynslu og þekkingu á rekstri þess. Rannveig hefur setið í stjórn Skipta og Símans frá árinu 2002 þegar fyrirtækið var í eigu íslenska ríkisins. Hún var formaður stjórnar frá 2002 til 2005 en hefur síðan verið varaformaður stjórnar. Lýður Guðmundsson lætur nú af formennsku en mun sitja áfram í stjórn Skipta, að því er fram kemur í tilkynningu fyrirtækisins.
„Það er spennandi að taka aftur við sem formaður. Skipti er vel rekið fyrirtæki sem gegnir mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi. Fyrirtækinu hefur tekist vel að laga reksturinn að þeim samdrætti sem er í íslensku efnahagslífi og er því ágætlega í stakk búið til að takast á við þá krefjandi tíma sem nú eru. Fjarskipti og upplýsingatækni eru mikilvægar stoðir í atvinnulífinu og ég er sannfærð um að Skipti verði áfram í lykilhlutverki við uppbyggingu á þeim sviðum á Íslandi,“ segir Rannveig Rist.
„Það hefur verið gefandi að starfa með stjórnendum Skipta og dótturfélaga að uppbyggingu fyrirtækisins undanfarin ár. Það er mikil vinna framundan hjá okkur bræðrum við rekstur Bakkavarar og að ljúka því ferli sem Exista er í og því rétt að láta nú af stjórnarformennsku hjá Skiptum. Það er mikils virði fyrir Skipti að Rannveig skuli taka þetta verkefni að sér. Hún hefur mikla þekkingu á starfsemi fyrirtækisins og er einn farsælasti stjórnandinn í íslensku atvinnulífi,“ segir Lýður Guðmundsson.
„Skipti hf. rekur fyrirtæki á sviði fjarskipta, upplýsingatækni og afþreyingar. Innan samstæðunnar eru Síminn, Míla, Já, Skjárinn, Sensa, Tæknivörur, Staki, On-Waves og Radiomiðun. Erlend fyrirtæki eru fjarskiptafélagið Síminn DK í Danmörku, og upplýsingatæknifyrirtækið Sirius IT sem er með starfsemi í Noregi, Svíþjóð og Danmörku. Hlutverk Skipta er að sinna sameiginlegri þjónustu fyrirtækjanna á einum stað, með hagræði og sveigjanleika að leiðarljósi.
Starfsmenn Skipta og dótturfélaga eru um 1.600 talsins, þar af um 1.100 á Íslandi. Velta Skipta á árinu 2008 var tæpir 40 milljarðar króna,“ segir enn fremur í tilkynningunni.
Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum
Sífellt harðari gjaldeyrisreglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.