amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:46
 
Frétt birtist 31. janúar 2010 klukkan 08:33

Starfsfólki skurðstofu HSS sagt upp - lokað 1. maí

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Jeff Kubina
Myndin er ótengd fréttinni.

Starfsfólk á skurðstofu Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja [HSS] hefur fengið uppsagnabréf í hendurnar samkvæmt því sem kemur fram á fréttavef Víkurfrétta. Átta starfsmenn eru á skurðstofu HSS og verður henni lokað 1. maí. Fleiri starfsmenn HSS mega vænta uppsagnarbréfa að því er Víkurfréttir segja. Allt að 14 starfsmönnum verður sagt upp til að ná markmiðum um þann niðurskurð sem stofnunin þarf að sýna.

Lokun skurðstofu setur fæðingardeild Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja í uppnám, enda skurðstofan mikið öryggisatriði ef eitthvað fer úrskeiðis við fæðingu, segir í frétt Víkurfrétta.

Hjúkrunarráð HSS lýsti yfir áhyggjum sínum með þann niðurskurð sem framundan er á stofnuninni í ályktunum sem samþykktar voru í liðinni viku. Bent er á að stofnunin fái mun minna fé úthlutað til reksturs á hvern íbúa en sambærilegar heilbrigðisstofnanir á landinu:

„Framkvæmdastjórn HSS er gert að skera niður útgjöld á þessu ári um 86,5 milljónir króna. Þjónusta við íbúa svæðisins hefur verið í lámarki undanfarin ár hvað heilsugæsluna varðar og á þessum tímapunkti komin á hættustig og álag á starfsfólk mikið. Þrátt fyrir að starfsfólk stofnunarinnar hafi náð að anna stórum hluta skjólstæðinga fyrir minna fé en aðrar stofnanir. Fyrirhugaður niðurskurður er lokun sykursýkimóttöku, lokun skurðdeildar sem veldur skerðingu á starfsemi fæðingardeildar, skerðing eða lokun á sál- og félagslegu þjónustunni og lengri tímabundnar lokanir á líknar- og endurhæfingardeild.

Stjórn hjúkrunarráðs HSS telur brýnt að koma því til skila að með áðurnefndum aðgerðum er þjónusta við sjúklinga verulega skert, öryggi þeirra ógnað og þjónustu við íbúa svæðisins stefnt í hættu.“

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX