amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:49
 
Frétt birtist 30. janúar 2010 klukkan 05:35

Aldrei sátt um að Bretar og Hollendingar fái „allt“ sitt

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Stöð 2
Bjarni Benediktsson

Á fundi í Haag um Icesave-málið gerði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, fjármálaráðherra Hollands og aðstoðarfjármálaráðherra Bretlands, það ljóst að aldrei mundi nást nein sátt í Icesave-málinu hér á landi gagnvart kröfu þeirra, sem ríkisstjórn Íslands hefði samþykkt, að þeir fengju allt „sitt“ greitt. Héldu þeir fast við slíka kröfu, yrði dómur að falla um hana, svo að Íslendingar teldu sér skylt að verða við henni. Þetta kemur fram á heimasíðu Björns Bjarnasonar, sem telur nauðsynlegt að ganga til þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave til að sýna Bretum og Hollendingum „svar á hvítu, að þeir standa andspænis einhuga þjóð“.

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, áttu í gær fund með fjármálaráðherra Hollands og aðstoðarfjármálaráðherra Bretlands. Í samtali við Morgunblaðið segir Steingrímur J. Sigfússon að fundurinn hafi verið gagnlegur og staðan skýrst. Menn átti sig betur á því hvernig báðir aðilar meta stöðu málsins. Aðspurður hvort greina megi afstöðubreytingu hjá Hollendingum í kjölfar synjunar forsetans á Icesave-lögunum segir Steingrímur þá „auðvitað hafa áhyggjur af þessari stöðu“:

„Þeir vilja gjarnan að þetta mál leysist um leið og þeir vilja fara varlega, vegna þess að þeir vilja skiljanlega ekki blandast inn í viðkvæma pólitíska stöðu á Íslandi og viðkvæmt ferli í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu.“

Morgunblaðið hefur það eftir Sigmundi Davíð að í ljós hafi komið að hægt sé að ræða við þessa menn. Hann segist vera bjartsýnn á að hægt verði að ná nýjum samningum sem verði hagstæðari fyrir okkur Íslendinga. Í svipaðan streng tekur Bjarni Benediktsson:

„Vilji er allt sem þarf. Þetta mál er á viðkvæmu stigi og það er ekki hægt að úttala sig um allt það sem menn eru að hugsa um. Menn verða auðvitað að geta þreifað á ýmsum sviðsmyndum sem eru dregnar upp án þess að úttala sig um þær. Þau skilaboð sem ég fór með inn á þennan fund eru nákvæmlega þau sömu og við höfum talað fyrir hér heima. Þetta var ekki samningafundur.“

Gildra?

Björn Bjarnason segir á heimasíðu sinni að strax og fréttir hafi borist af því að Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson „hefðu haldið til Amsterdam með Steingrími J. Sigfússyni fór hrollur um marga sjálfstæðismenn, vegna þess hve mikla skömm þeir hafa á framgöngu Steingríms J., sem hvað eftir annað hefur sýnt, að hann svífst einskis í þágu ráðherravaldanna.Töldu þeir, að Steingrímur J. væri að draga þá í gildru til að komast undan því, að Icesave-málið færi í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hann vildi sannfæra stjórnarandstöðuna, að ekki yrði lengra komist gegn Bretum og Hollendingum.“

Björn leggur áherslu á nauðsyn þess að ganga til þjóðaratkvæðagreiðslunnar:

„Hin mikla athygli, sem atkvæðagreiðslan fær á alþjóðavettvangi, verður til að þrýsta á stjórnvöld í Bretlandi og Hollandi úr annarri átt en frá Íslandi, það er frá þeirra eigin kjósendum.“

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX