amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Þriðjudagurinn 7. febrúar 2012 - 08:54
 
Frétt birtist 29. janúar 2010 klukkan 18:28

Nýherji tapaði 686 milljónum á síðasta ári

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
M5
Höfuðstöðvar Nýherja við Borgartún.

Tap Nýherja á árinu 2009 nam 686 milljónum króna. Heildartekjur félagsins námu rúmum 14,3 milljörðum króna og drógust saman um 4% frá fyrra ári. Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja, segir að rekstur fyrirtækisins hafi verið afar erfiður á árinu. Aðstæður á íslenskum markaði hafi einkennst af miklum samdrætti í eftirspurn.

Í tilkynningu Nýherja um afkomuna segir:

Helstu niðurstöður fyrir árið 2009

• Heildartekjur Nýherja samstæðunnar voru 14.332 mkr á árinu og drógust saman um 4% frá fyrra ári.

• Jákvæð afkoma af vörusölu innanlands, en tap af hugbúnaðarstarfsemi, tækniþjónustu og ráðgjöf.

• Verulegur halli á rekstri dótturfélaga í Danmörku í fjórða ársfjórðungi.

• EBITDA ársins var neikvæð um 62 mkr, en afkoma batnaði innanlands á síðar árshelmingi. Heildartap ársins nam 686 mkr

• Nýherji á í harðri og vaxandi samkeppni við endurreist fyrirtæki í eigu banka.

• Viðskiptavild er færð niður um 322 mkr á grundvelli niðurstöðu virðisrýrnunarprófa dótturfélaga

• Ráðist hefur verið í víðtækar hagræðingaraðgerðir, m.a. hefur starfsmönnum á Íslandi fækkað um nær eitt hundrað á árinu.

• Unnið er með viðskiptabönkum félagsins að endurskipulagningu skulda jafnhliða útgáfu á nýju hlutafé og verður á aðalfundi lögð fram tillaga um að auka megi hlutafé um allt að 120 mkr að nafnvirði.

Þórður Sverrisson, forstjóri:

„Rekstur Nýherja hf. var afar erfiður á árinu 2009 og tap á rekstri. Aðstæður á íslenskum markaði einkenndust af miklum samdrætti í eftirspurn vegna minni fjárfestinga fyrirtækja í tæknibúnaði og uppsetningu hugbúnaðarkerfa. Á upplýsingatæknimarkaði hafa þessar aðstæður leitt til þrenginga en tugir milljarða króna hafa verið afskrifaðir af skuldum helstu keppinauta félagsins og fyrirtækin endurreist í eigu ríkisbanka. Þessar aðgerðir raska samkeppnisaðstæðum og afkomu annarra fyrirtækja á upplýsingatæknimarkaði.

Nýherji hefur mætt þessum efnahagserfiðleikunum með því að sjá á eftir á annað hundrað starfsmanna sinna frá hruni bankanna. Í janúar á þessu ári hefur reynst nauðsynlegt að grípa til frekari hagræðingaraðgerða til að mæta þeim óeðlilegu aðstæðum sem eru á innlendum markaði.

Þó að óvissa sé mikil í efnahagslífinu eru jákvæð teikn um viðunandi rekstur á árinu 2010 þar sem horfur eru á að samningar náist um ýmis stærri verkefni hjá fyrirtækjum samstæðunnar hérlendis og erlendis. Til þess að tryggja fjárhagsstöðu félagsins er nú unnið með viðskiptabönkum að því að ljúka fjárhagslegri endurskipulagningu og samningum um langtíma fjármögnun í samræmi við þær aðgerðaáætlanir sem bankarnir hafa boðað gagnvart fyrirtækjum, ásamt aukningu á hlutafé Nýherja. Gert er ráð fyrir að því ferli verði lokið í öðrum ársfjórðungi“.

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX