amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Þriðjudagurinn 7. febrúar 2012 - 08:56
 
Frétt birtist 29. janúar 2010 klukkan 18:05

Innköllun á 5000 Toyotabifreiðum

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Daniel Chew Tze Wenn
Merki Toyota

Toyota í Evrópu hefur ákveðið að kalla inn 8 gerðir af Toyota bifreiðum vegna mögulegs vandamáls í eldsneytisgjöf. Áætlað er að kalla þurfi inn yfir 5.000 bíla á Íslandi.

Bifreiðarnar sem um ræðir og framleiðslutími þeirra er sem hér segir:

  • AYGO Febrúar 2005 til ágúst 2009
  • iQ Nóvember 2008 til nóvember 2009
  • Yaris Nóvember 2005 til nóvember 2009
  • Auris Október 2006 til 5. janúar 2010
  • Corolla Október 2006 til desember 2009
  • Verso Febrúar 2009 til 5. janúar 2010
  • Avensis Nóvember 2008 til desember 2009
  • RAV4 Nóvember 2005 til nóvember 2009

Ekki er enn ljóst hver heildarfjöldi innkallaðra bifreiða í Evrópu verður en talið er að kalla þurfi inn allt að 1,8 milljón bíla. Vandamálið hefur hvorki komið upp í öðrum gerðum Toyota né Lexus bifreiðum.

Í tilkynningu segir að vandamálið geti komið upp vegna þess að um slit er að ræða í eldsneytisgjöfinni. Við ákveðnar umhverfis- og notkunaraðstæður getur þetta slit orðið til þess að núningur í eldsneytisgjöfinni eykst sem verður síðan til þess að af og til getur orðið erfiðara að stíga á bensíngjöfina, hún lyftist hægar til baka í upphafsstöðu eða í versta falli getur hún orðið föst að einhverju leyti í inngjafarstöðu.

„Toyota hefur alltaf lagt ofurkapp á að tryggja öryggi viðskiptavina sinna. Við munum því gera allt sem í okkar valdi stendur til að hefja þær fyrirbyggjandi aðgerðir sem félagar okkar hjá Toyota í Evrópu hafa boðað sem allra fyrst,“ segir Úlfar Steindórsson, forstjóri Toyota á Íslandi. „Ég vil ítreka gagnvart viðskiptavinum okkar að tilvik sem þessi eru mjög sjaldgæf. Einungis hefur verið tilkynnt um 26 slík tilvik í Evrópu og Toyota í Evrópu hefur ekki fengið neinar fregnir af slysum tengdum þeim. Ég hvet hinsvegar eindregið þá sem hafa áhyggjur af virkni eldsneytisgjafar í bílum sínum að hafa samband við næsta þjónustuaðila Toyota.“

Lausn á ofangreindu vandamáli liggur fyrir hjá Toyota í Evrópu og er verið að leggja lokahönd á undirbúning og skipulag innköllunarinnar. Áætlað er að kalla þurfi inn yfir 5.000 bíla á Íslandi. Haft verður samband við eigendur viðkomandi bíla fljótlega og þeir beðnir að koma með bílinn til viðurkennds þjónustuaðila Toyota þeim að kostnaðarlausu.

Ofangreint vandamál mun ekki hafa áhrif á núverandi framleiðslu Toyotabifreiða þar sem nýr búnaður er notaður í þá bíla sem nú eru framleiddir.

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX