amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:47
 
Frétt birtist 29. janúar 2010 klukkan 15:21

Fjórir Íslendingar taldir standa á bak við gjaldeyris­brotin

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Fyrir félaginu Aserta eru skráðir tveir útlendir einstaklingar. Fjórir menn, Íslendingar sem ekki eru búsettir á Íslandi, sem eru til rannsóknar eru taldir vera raunverulegir stjórnendur þess. Þrír þeirra eru í haldi og sá fjórði í yfirheyrslu.

Í dag hafa verið framkvæmdar húsleitir í fyrirtækjum og heimilum hér á landi. Í þessum aðgerðum hafa tekið þátt um 30 starfsmenn þessara embætta. Rannsóknin beinist að félaginu Aserta sem er skráð í Svíþjóð og fjórum einstaklingum. Málið hófst með kæru Fjármálaeftirlitsins 19. nóvembeber 2009, að því er mbl.is greinir frá.

Þar segir enn fremur:

„Grunsemdir eru um að þetta félag í Svíþjóð hafi tekið við fjármunum á reikninga sína án þess að hafa leyfi til þess frá Seðlabankanum. Það hafi keypt krónur á aflandsmarkaði. Heildarveltan á reikningum þessa félags og tengdra félaga er 48 milljarðar á því tímabili sem rannsóknin nær til.

Fyrir félaginu Aserta eru skráðir tveir útlendir einstaklingar. Fjórir menn, Íslendingar sem ekki eru búsettir á Íslandi, sem eru til rannsóknar eru taldir vera raunverulegir stjórnendur þess. Þrír þeirra eru í haldi og sá fjórði í yfirheyrslu.

Fjárhæðin með gjaldeyri nemur um 13 milljörðum sem nemur um 7% af heildarveltu á gjaldeyrismarkaði á þessum tíma. Félagið er talið hafa átt í viðskiptum við um 100 aðila hér á landi.

Brotin snúa að ólöglegri miðlun gjaldeyris. Viðskiptin eru umfangsmikil og líkleg til að hafa haft áhrif á veikingu krónunnar.

Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari efnahagsbrota, Gunnar Andersen forstjóri Fjármálaeftirlitsins og Ingibjörg Guðbjartsdóttir forstöðumaður gjaldeyriseftirlits Seðlabankans sögðu frá málinu.

Helgi Magnús sagði að viðskipti af þessu tagi hafi verið ábatasöm. Hann sagði að sagt hafi verið frá málinu til viðvörunar. Efnahagsbrotadeild mun reyna að hafa uppi á ávinningi af þessum viðskiptum.

Ingibjörg sagði um að ræða brot á skilaskyldu. Hámarksrefsing við brotum af þessu tagi er tveggja ára fangelsi.

Þetta kom fram á blaðamannafundi sem efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra boðaði til og hófst kl. 15.00. Fundurinn var haldinn sameiginlega af fulltrúum efnahagsbrotadeildar, Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins.“

Tengt efni

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX