amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Þriðjudagurinn 7. febrúar 2012 - 08:52
 
Frétt birtist 29. janúar 2010 klukkan 14:16

Grunaðir um að víxla andvirði þrettán milljarða framhjá höftum

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra grunar félög í eigu nokkurra fyrrum starfsmanna Straums Fjárfestingabanka um stórfelld brot gegn gildandi gjaldeyrishöftum.

Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra grunar félög í eigu nokkurra fyrrum starfsmanna Straums Fjárfestingabanka um stórfelld brot gegn gildandi gjaldeyrishöftum. Félögin tvö heita Glacier Capital Partners, skráð á Íslandi, og Aseria, skráð erlendis, að því er vefur Viðskiptablaðsins hefur eftir heimildum sínum.

Efnahagsbrotadeild mun kynna rannsókn sína á þessum brotum á gjaldeyrishöftum á blaðamannafundi klukkan 15:00 í dag.

Á vef Viðskiptablaðsins segir:

Keyptu krónur á aflandsgengi og græddu milljarða

Málið snýr að eignarhaldsfélögum í eigu nokkurra fyrrum starfsmanna Straums Fjárfestingabanka, Glacier Capital Partners og Aseria, og varðar upphæð sem nemur um sjö prósent af allri gengisveltu í landinu. Mennirnir eru grunaðir um að hafa víxlað andvirði 13 milljarða króna úr erlendum gjaldeyri í íslenskar krónur á aflandsgengi framhjá gjaldeyrishöftunum sem sett voru í kjölfar bankahrunsins haustið 2008. Þeir fluttu nýverið lögheimili sitt til Lundúna.

Aflandsgengi krónu er mun hærra en gengi Seðlabanka Íslands. Sem dæmi má nefnda að hjá Seðlabankanum fást 178 krónur fyrir hverja evru á meðan að hægt er að fá um 267 krónur fyrir hverja evru víða erlendis. Heimildir Viðskiptablaðsins herma að hagnaður af hverjum viðskiptum sem fara fram með þessum hætti sé á bilinu 15 til 40 prósent af þeirri upphæð sem gjaldeyrissalan skilar. Því er um milljarða króna hagnað að ræða.

Viðurlög allt að tveggja ára fangelsi og upptaka eigna

Gjaldeyrishöftin voru sett til að reyna að verja íslensku krónuna frá frekari falli. Viðurlög vegna brota gegn gjaldeyrishöftunum eru allt að tveggja ára fangelsi. Hægt er að kyrrsetja eignir þeirra sem eru grunaðir um brot af þessu tagi og gera þær upptækar ef hinir grunuðu verða sakfelldir. Heimildir Viðskiptablaðsins herma að bæði handtökur og húsleitir hafi þegar verið framkvæmdar í tengslum við rannsóknina.

Rannsókn efnahagsbrotadeildarinnar er unnin í samvinnu við Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitið.„

Tengt efni

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX