amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:44
 
Frétt birtist 29. janúar 2010 klukkan 13:52

Verið að reyna að brjóta VR niður

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Ed

Meirihluti stjórnar VR segir að samtökin Nýtt Ísland, sem stofnuð voru í tengslum við kosningar í VR á síðasta ári, beiti kröfum sínum í að brjóta félagið niður. Harmað er að nokkrir stjórnarmenn í VR tengist samtökum sem virðast m.a. hafa það á stefnuskrá sinni að leggja niður Alþingi Íslendinga.

Í tilkynningu frá meirihluta stjórnar VR segir að samtökin Nýtt Ísland hafi reynt að ná völdum í VR í kosningum um forystu félagsins á síðasta ári en formannsefni þeirra náði ekki kjöri. Síðan hafi samtökin beint spjótum sínum að VR, m.a. með dylgjum og óhróðri á vefsíðu samtakanna:

„Hvað vakir fyrir þeim vitum við ekki en hins vegar er ljóst að þrír stjórnarmenn í VR, Bjarki Steingrímsson, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og Ragnar Þór Ingólfsson, hafa sterk tengsl við þessi samtök.

Meirihluti stjórnar VR harmar að stjórnarmenn í félaginu leggi lag nafn sitt við samtök af því tagi sem hér um ræðir. Til marks um þá stefnu sem samtökin aðhyllast er eftirfarandi sem birt er á heimasíðu þeirra:

  • Við erum hægrisinnaður félagsskapur sem er til í að styðja enn frekar undir sjálfstæði Íslendinga.
  • Lífeyrissjóðum fækkað úr 29 í einn.
  • Ríkisstarfsmönnum fækkað verulega. Öllum millistjórnendum, framkvæmdastjórum og forstjórum sagt upp á 1.- 3ja ára uppsagnafresti.
  • Utanþingstjórn / starfsstjórn verði komið á sem fyrst.
  • Smá sem stór brot verði skilgreind í hertari refsiramma þar sem það á við.
  • Lýðreglu verði komið á ásamt sérstakri lögreglu sem vinnur í leyni að því að útrýma almennri glæpastarfsemi á Íslandi .
  • Fangelsi gerð rammgirtari og fjölgað. Skylduvinna og ábótakerfi fyrir fanga verði komið upp.
  • Er það nauðsynlegt að við Íslendingar þurfum 63 þingmenn? Þurfum við Alþingi? Þurfum við stjórnmálaflokka? Er hægt að hugsa Ísland án stjórnmálaflokka?
 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX