amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:43
 
Frétt birtist 29. janúar 2010 klukkan 11:52

Kastrup fær leyfi til að prófa líkamsskanna

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Marks DK
Kastrupflugvöllur við Kaupmannahöfn. Tilraunir eru nú gerðar með líkamsskanna á vellinum. Kastrup er sá erlendi flugvöllur sem flestir Íslendingar fara um.

Leyfi hefur verið gefið til notkunar líkamsskanna á Kastrupflugvelli í Kaupmannahöfn í tilraunaskyni. Lars Barfoed, samgönguráðherra Danmerkur, veitti leyfið en hann reiknar með því að slíkur skanni verði kominn í almenna notkun á Kastrup innan sex mánaða, að því er Börsen greinir frá. Kastrupflugvöllur er sá erlendi flugvöllur sem flestir Íslendingar fara um.

„Það er jákvætt að stjórnendur á Kastrup taki þetta frumkvæði sem er flugvallarstarfsmönnum og yfirvöldum mikilvægt, annars vegar kynnir það nýja tækni og hins vegar venur það farþega við slíka líkamsleit,“ segir ráðherrann.

Tilraunin með líkamsskannann á að sýna fram á kosti og galla slíkra tækja en þessi tækni er afar umdeild enda lýsir hún í gegnum klæði fólks. Með gegnumlýsingunni á að tryggja aukið öryggi í flugvélum, þ.e. að reyna að koma í veg fyrir að farþegar fari um borð með vopn eða sprengiefni innan á sér. Það ýtti mjög við yfirvöldum víða um heim þegar nígerískur maður slapp með sprengiefni í gegnum leit á flugvellinum í Amsterdam um borð í bandaríska þotu Delta flugfélagsins. Litlu munaði að hann sprengdi vélina í loft upp yfir Detroit í Bandaríkjunum.

Bretar og Hollendingar hafa þegar tekið upp slíka líkamsskönnun á flugvöllum. Meirihluti danskra stjórnmálaflokka er fylgjandi slíkri leit. Meiri andstaða er hins vegar innan Evrópuráðsins og Evrópuþingsins.

Þessi tækni hefur verið tekin í notkun á meira en tuttugu flugvöllum í Bandaríkjunum.

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX