amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:41
 
Frétt birtist 29. janúar 2010 klukkan 11:10

Mikil endurnýjun hjá Volkswagen - 60 nýjar gerðir boðaðar 2010

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Bílaframleiðslan er fjölbreytt. Innan samsteypunnar er m.a. ofursportbíllinn Lamborghini.

Martin Winterkorn forstjóri Volkswagen samsteypunnar segir við breskt bílablað að svo mikill gangur sé í framleiðslunni að 60 nýjar og endurnýjaðar undirgerðir muni koma fram á þessu ári. Þá ætli Volkswagen sér að vera tryggilega orðinn stærsti bílaframleiðandi veraldar fyrir árið 2018, að því er fram kemur á vef Félags íslenskra bifreiðaeigenda.

Þar segir enn fremur:

Lamborghini Revention að innan.

„Einn þessara 60 nýju eða endurnýjuðu gerða er VW Jetta. Engar myndir hafa verið birtar af þessari nýju Jettu ennþá, heldur einungis tölvugerðar myndir sem auðvitað eru getgátur. En sérhver þessara 60 nýjunga verður aldrei fáanleg á Vesturlöndum þar sem margar nýjunganna eru ætlaðar kínverskum, indverskum og s. amerískum mörkuðum. En það sem væntanlegt er á Evrópumarkað á árinu er m.a. ný kynslóð VW Passat, nýja Jettan sem fyrr er nefnd og nýr Phaeton, lúxusbíll Volkswagen merkisins. Auk þessara bíla sem nú ganga gegn um “kynslóðaskipti„ kemur “andlitslyftur„ Touran.

Martin Winterkorn segir í þessu viðtali sem Autocar tímaritið tók við hann, að það sé mikið mál að reka framleiðslu sjö bílamerkja (Volkswagen, Skoda, Seat, Audi, Bentley, Lamborghini og Bugatti), undir Volkswagen hattinum svo vel sé. Ástæða þess hve vel hefur til tekist er að hans sögn, öguð vinnubrögð. Allir verði að gera sitt ítrasta og besta hvern einasta dag til að geta byggt heimsins bestu bíla. Jafnframt skipti miklu að þeir sem annast þróun hvers vörumerkis um sig hafi skýra stefnu til að fara eftir. Aldrei megi vera minnsta hætta á að blanda saman vörumerkjunum, hvort heldur hvað varðar útlit, hönnun, innviði eða ímynd.

VW-forstjórinn ítrekar það sem hann hefur áður lýst yfir, að Volkswagen ætli sér að vera orðið stærsta bílaframleiðslufyrirtæki veraldar og vera búið að keyra framúr Toyota í síðasta lagi 2018. „Við ætlum að framleiða minnst sjö vörumerki og byggja minnst 10 milljón bíla á ári,“ segir Winterkorn. Mestir þróunarmöguleikar felist nú í framleiðslu smábíla. Það sé vissulega erfitt að kreista hagnað út úr smábílaframleiðslunni en alls ekki ómögulegt. Hagnaðarvonin felist í magnsölu og aðhaldi í framleiðslu.“

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX