amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:14
 
Frétt birtist 28. janúar 2010 klukkan 17:46

Ásbjörn segir sig úr þing­nefnd um rannsóknarskýrsluna

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Ásbjörn Óttarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur sagt sig úr níu manna þingmannanefnd sem fjalla á um skýrslu nefndar sem vinnur nú að rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna 2008 og tengdra atburða.

Ásbjörn Óttarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur sagt sig úr níu manna þingmannanefnd sem fjalla á um skýrslu nefndar sem vinnur nú að rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna 2008 og tengdra atburða. Undanfarið hefur þingmaðurinn verið í fréttum vegna ólöglegrar arðgreiðslu sem hann hefur endurgreitt.

Í tilkynningu Ásbjörns segir:

„Undir lok síðasta árs tók ég sæti í níu manna þingmannanefnd sem fjalla á um skýrslu nefndar sem vinnur nú að rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna 2008 og tengdra atburða.

Tilgangur nefndarinnar er að vinna úr þeim upplýsingum sem fram koma í skýrslu rannsóknarnefndarinnar, þannig að læra megi af þeim mistökum sem gerð voru í aðdraganda falls bankanna. Það er von mín að þar verði stigið mikilvægt skref til uppbyggingar og endurreisnar trausts í íslensku viðskiptalífi, sem og samfélaginu öllu.

Að undanförnu hafa mál er mér tengjast verið til umfjöllunar í fjölmiðlum. Ég hef gert skilmerkilega grein fyrir því hvernig þeim málum var háttað og gert allt sem í mínu valdi stendur til að leiðrétta þau mistök sem gerð voru. Ég hef nú ákveðið að segja mig frá störfum í nefndinni, til að tryggja að friður ríki um störf hennar. Þau mál sem hún mun hafa til umfjöllunar eru þess eðlis að ekkert má verða til að draga athyglina frá þeirri mikilvægu vinnu sem nefndinni er ætlað að inna af hendi, þar með talin persónuleg mál einstakra nefndarmanna.“

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX