amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:28
 
Frétt birtist 28. janúar 2010 klukkan 17:04

„Atvinnuleysi hverfur með 5% meðalhagvexti 2011-2015“

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
SA
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

Ef það tekst að ná 5% meðalhagvexti á Íslandi á árunum 2011-2015 mun atvinnuleysi hverfa og landsmenn endurheimta lífskjör sín. Með slíkum vexti verður hægt að greiða niður skuldir ríkisins og sækja fram í velferðarmálum. Með 2% meðalvexti á sama tíma mun atvinnuleysi hins vegar verða svipað og nú, ríkisfjármálin í vanda og velferðarkerfinu hraka.

Ef 3,5% meðalvöxtur næst á árunum 2011-2015 mun atvinnuleysi minnka, lífskjör heldur batna, ríkisfjármálin verða viðráðanlegri en velferðarkerfið mun hins vegar staðna. Þetta kom m.a. fram í máli Vilhjálms Egilssonar, framkvæmdastjóra SA, sem flutti erindi á ráðstefnu Sóknaráætlunar 20/20 og fram fór á Hótel Sögu 28. janúar 2010, að því er fram kemur á síðu Samtaka atvinnulífsins.

Þar segir enn fremur:

„Vilhjálmur sagði að 11% samdrætti væri spáð í íslensku efnahagslífi samanlagt árin 2009 og 2010 og að kaupmáttur ráðstöfunartekna minnki um meira en fjórðung á sama tíma. Útlit er fyrir að atvinnuleysi verði á bilinu 9-10% og ríkissjóður þurfi að greiða 120 milljarða króna nýjan vaxtareikning. Við þessar aðstæður væri rétt að spyrja að því hvert beri að stefna til ársins 2015 eða 2020.

Svar Vilhjálms er einfalt: Til þess að endurheimta lífskjör Íslendinga er nauðsynlegt að leggja höfuðáherslu á hagvöxt og sköpun nýrra starfa ásamt því að auka og efla framleiðslu til að afla frekari útflutningstekna. „Atvinnulífið skapar störfin,“ sagði Vilhjálmur og benti á að það gerist aðeins með fjárfestingum, sparnaði og nægilegu lánsfé á viðráðanlegum kjörum, auk þess að fyrirtæki séu sátt við starfsumhverfi sitt og hafi trú á framtíðina.

„Til að atvinnulífið geti sótt fram á nýjan leik verður íslenskt atvinnulíf að búa við samkeppnishæf starfsskilyrði - það er algjört frumskilyrði.“

Hvað varðar möguleika Íslands til að sækja fram benti Vilhjálmur á að ekki sé hægt að skipta um í einni hendingu fólki í forystu 20 þúsund fyrirtækja stórra sem smárra. Fólk þurfi að gefa hvort öðru starfsfrið og í uppgjöri við það sem liðið er megi ekki hlekkja niður möguleika lands og þjóðar til þess að efla samkeppnishæfni landsins til framtíðar.“

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX