amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:15
 
Frétt birtist 28. janúar 2010 klukkan 16:49

Mörkin býður upp á 78 þjónustuíbúðir fyrir fólk frá sextugu

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Landsbankinn
Ásmundur Stefánsson, bankastjóri Landsbankans lýsir ánægju sinni með aðkomu Grundar að þessu verkefni: ?Bankinn er ánægður með þá niðurstöðu sem fengist hefur."

Félag í eigu dvalar- og hjúkrunarheimilisins Grundar, Grund - Mörkin ehf, hefur fest kaup á 78 íbúðum að Suðurlandsbraut 58-62. Þar verður boðið upp á fyrsta flokks þjónustuíbúðir fyrir fólk frá sextugu. Þetta er stærsta fjárfesting Grundar í áttatíu ár. Capacent Glacier var ráðgjafi Grundar. Dótturfélag Landsbankans er seljandi, að því er fram kemur í tilkynningu Grundar.

Þar segir enn fremur:

Stærð íbúðanna er allt frá 80 m2 og upp í um 140 m2. Þær eru tilbúnar til sölu og afhendingar með vönduðum innréttingum og gólfefnum.

Um búseturéttarfyrirkomulag verður að ræða og verði stillt í hóf, enda markmið Grundar að gera flestum kleyft að ráða við það fjárhagslega að flytja í þessar fallegu íbúðir.

Til að gefa verðhugmynd má nefna að fyrir 80 m2 íbúð er greitt 7,9 milljónir króna í íbúðarréttargjald sem síðar er endurgreitt við lok samnings eftir nánari skilmálum og mánaðarleg leiga um 116.000 krónur, auk hússjóðs.

Ásmundur Stefánsson bankastjóri Landsbankans, lýsir ánægju sinni með aðkomu Grundar að þessu verkefni: „Bankinn er ánægður með þá niðurstöðu sem fengist hefur. Við höfum rætt við fjölda aðila undanfarna mánuði sem lýst hafa áhuga á eignunum og sumir hafa sett fram formleg tilboð. Á endanum náðust samningar við Grund sem við teljum vera vel viðunandi fyrir bankann og hagsmuni hans. Það er mjög ánægjulegt að Grund, sjálfseignarstofnun og líknarfélag sem einbeitir sér að öldrunarþjónustu, sé orðinn eigandi þessara íbúða og ekki síður að nú færist í þær það líf sem sárlega hefur skort.“

„Íbúðirnar eru kærkomin viðbót við annars blómlegan rekstur dvalar- og hjúkrunarheimilisins Grundar við Hringbraut en þar hefur þungamiðja starfseminnar verið í Reykjavík“, segja framkvæmdastjóri Grundar - Markar ehf. Gísli Páll Pálsson og Júlíus Rafnsson stjórnarformaður félagsins. Jafnframt rekur Grund dvalar- og hjúkrunarheimilið Ás í Hveragerði. „Við væntum þess að um 120 manns muni búa hér hjá okkur í íbúðunum og gleðjumst yfir því að geta boðið þessu fólki stuðning með þjónustuframboði sem mun skapa því aðstæður til að varðveita sín lífsgæði og geta verið heima sem lengst. Þessi kaup marka tímamót hjá Grund því með þessum kaupum fær heimilið tækifæri til að bjóða fólki sem komið er yfir sextugt upp á glæsilegar þjónustuíbúðir á viðráðanlegu verði. “

Ráðist verður á næstunni í að reisa þjónustubyggingu austan við íbúðablokkirnar og til stendur að ræða við Reykjavíkurborg um að koma að þeirri framkvæmd með Grund. Í þjónustubyggingunni verður boðið upp á fjölbreytta þjónustu.„

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX