amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Laugardagurinn 4. febrúar 2012 - 16:22
 
Frétt birtist 30. desember 2009 klukkan 18:22

Össur hækkaði um 53% en Icelandair lækkaði um 70%

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Borkur.net
Kauphöll Íslands

Verð hlutabréfa tveggja úrvalsvísitölufélaga hækkaði á þessu ári. Það var gengi Össurar sem hækkaði um 53% og Færeyja banka um 7%. Hlutabréfaverð Icelandair og Atlantic Petroleum lækkaði aftur á móti mest, eða um ríflega 70% fyrir hvort félag. Gengi Bakkavarar og Marel lækkaði síðan í líkingu við úrvalsvísitöluna sjálfa eða um fimmtung.

Þetta kemur fram í samantekt Hagsjár Landsbanka Íslands. Bent er á að fremur hafi verið tíðindalítið á hlutabréfamarkaði. Úrvalsvísitalan sem áður stóð saman af 15 félögum hefur nú aðeins 6 félög undir sínum hatti og þar til viðbótar eru 4 félög sem myndar svokallaðan Aðallista. Heildarvísitala Aðallistans lækkaði um nærri 90% á síðasta ári en í ár lækkaði hún um 16%. Fyrri hluti ársins, eða öllu heldur fyrsti ársfjórðungur, var slæmur en á honum lækkaði heildarvísitalan um þriðjung, segir í Hagsjánni. Staðan batnaði umtalsvert eftir veturinn og hækkaði heildarvísitalan t.a.m. um tæp 18% í maí.

Veltan skugginn af sjálfum sér

Velta á hlutabréfamarkaði nam að meðaltali 2,9 milljörðum króna á mánuði og segir Hagsjá að sú tala sé meira í líkingu við dagsveltu á árunum 2006-2008. Hryggjarstykki kauphallarveltunnar í ár var því skuldabréfaveltan, en hún var að meðaltali 220 milljarðar á mánuði eða hundraðfalt meiri en hlutabréfaveltan.

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX