
Samkeppniseftirlitið hefur í ákvörðun sinni í dag komist að þeirri niðurstöðu að Síminn hafi gerst brotlegur við skilyrði sem eftirlitið setti honum í fyrri ákvörðun og þannig raskað með alvarlegum hætti samkeppni frá minni keppinautum. Leggur Samkeppniseftirlitið 150 milljóna króna sekt á Símann, að því er fram kemur á síðu Samkeppniseftirlitsins.
Þar segir enn fremur:
„Samkeppniseftirlitinu barst kæra frá TSC ehf. þar sem því var haldið fram að Síminn hefði brotið gegn skilyrðum sem sett voru í ákvörðun samkeppnisráðs nr. 10/2005 Samruni Landssíma Íslands hf. og Íslenska sjónvarpsfélagsins hf. TSC er fjarskiptafyrirtæki sem starfar á norðanverðu Snæfellsnesi og er keppinautur Símans.
Umrædd ákvörðun samkeppnisráðs fjallaði um samruna Símans og Íslenska sjónvarpsfélagsins (nú undir heitinu Skjárinn miðlar ehf.). Í henni var komist að þeirri niðurstöðu að samruninn raskaði samkeppni og að þörf væri á íhlutun vegna hans. Var bent á að óbreyttu styrki samruninn markaðsráðandi stöðu Símans á þeim fjarskiptamörkuðum er málið varðar og að hætta væri á því að samruninn takmarkaði verulega möguleika keppinauta Símans til þess að veita samkeppni, t.d. ef Síminn hefði óeðlilegan forgang að dreifingu sjónvarpefnis frá Íslenska sjónvarpsfélaginu. Síminn óskaði eftir því að gerð yrði sátt í málinu og varð það niðurstaðan. Samrunaðilar féllust á að fara eftir tilteknum skilyrðum til þess að eyða þeim samkeppnishömlum sem ella hefðu stafað af samrunanum.
Í ákvörðun nr. 10/2005 var lagt bann við því að Síminn tvinnaði saman sölu á fjarskipta- og sjónvarpsþjónustu. Var þetta liður í því að tryggja að keppinautar Símans í Internetþjónustu gætu á jafnréttisgrundvelli boðið viðskiptavinum sínum upp á eftirsóknarvert sjónvarpsefni því ella gæti það leitt til alvarlegra samkeppnishamlna fyrir minni keppinauta. Síminn braut gegn þessu banni með því að láta sjónvarpsefni Íslenska sjónvarpsfélagsins, flutning þess og dreifingu fylgja frítt með í verði ADSL tenginga Símans vegna Internetþjónustu og raskaði þar með samkeppni.
Síminn braut einnig gegn umræddri ákvörðun með því að beita TSC aðgangshindrunum að flutningskerfi fyrirtækisins vegna dreifingu á sjónvarpsefni Íslenska sjónvarpsfélagsins. Með þessum hætti var samkeppnisstöðu TSC raskað með alvarlegum hætti. Í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins er lýst þeirri þrautagöngu sem TSC mátti þola vegna þessarar háttsemi Símans.
Fyrirtæki sem fallast á skilyrði til að vinna gegn samkeppnishamlandi samruna verða að leitast við að markmið skilyrðanna nái fram að ganga. Felst í því alvarlegt brot af hálfu Símans að ganga gegn heiti sínu um að beita ekki aðgerðum eins og þeim sem mál þetta tekur til.“
Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum
Sífellt harðari gjaldeyrisreglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.