
Hagsjá Landsbankans spáir því að verðbólga milli nóvember og desember mælist 0,6%. Gangi spáin eftir lækkar 12 mánaða verðbólga úr 8,6% niður í 7,6%, en vísitalan hækkaði um 1,5% í desember í fyrra. Sú hækkun dettur nú úr tólf mánaða taktinum.
Hagdeildin segir:
„Við spáum því að verðbólga milli nóvember og desember mælist 0,6%. Við búumst við fremur litlum verðhækkunum á mat- og drykkjarvörum en teljum líklegt að kaupmenn muni nýta sér aukna neyslu í desember og beita tilboðum til að reyna að laða viðskiptavini til sín. Líklegt má telja að nokkrar áframhaldandi verðhækkanir verði á fötum, skóm, húsgögnum og heimilisbúnaði. Þessir liðir hafa hækkað um tæplega helming frá fyrri hluta árs 2008 en á sama tíma hefur gengisvísitala íslensku krónunnar hækkað um ríflega 60%. Hreyfingar á öðrum liðum verða minni samkvæmt spánni.
Gangi spáin eftir lækkar 12 mánaða verðbólga úr 8,6% niður í 7,6%, en vísitalan hækkaði um 1,5% í desember í fyrra. Sú hækkun dettur nú úr tólf mánaða taktinum.
Mun samkeppni um viðskiptavini draga úr hækkunum?
Matar- og drykkjarliðurinn hefur hækkað umtalsvert síðustu mánuði og má rekja hækkanirnar að miklu leyti til breytinga á vörugjöldum og að einhverju leyti vegna veikingar krónunnar þó mjög sé farið að hægja á henni. Við teljum fremur ólíklegt að komi til verðhækkana á matvælum og drykkjarvörum í desember, en líklegt er að neytendur horfi betur nú en oft áður á krónurnar áður en þeim er varið í neyslu og kaupmönnum því sniðinn þrengri stakkur til verðhækkana.
Á móti kemur, sér í lagi með hálfvaranlegar neysluvörur eins og fatnað og húsgögn, að kaupmenn gætu haft tilhneigingu til verðhækkana, þar sem innkaupaverð í krónum talið hefur hækkað ríflegar en söluverð frá fyrri hluta árs 2008 og desember verður að öllum líkindum besti sölumánuðurinn næsta misserið. Þá hefur eldsneytisverð lækkað óverulega frá síðustu verðmælingu Hagstofunnar.
Fimm hornsteinar húsnæðisliðarins
Tíðrætt hefur verið um þróun húsnæðisliðarins, en til að hnykkja á því skiptist hann í fimm undirliði. Sá fyrsti, greidd húsaleiga mælir verðbreytingar á leigumarkaði, annar liðurinn, reiknuð húsaleiga, mælir verðbreytingar á kostnaði við að búa í eigin húsnæði og vega breytingar á vöxtum og markaðsvirði húsnæðis þar þyngst. Þriðji liðurinn er viðhald og viðgerðir á húsnæði, sem vart þarf að skýra. Fjórði liðurinn er annað vegna húsnæðis, en inn í hann eru metnar verðbreytingar á gjöldum sem innheimt eru með fasteignagjöldum en þó ekki fasteignaskatti. Fimmti og jafnframt síðasti liðurinn mælir síðan verðbreytingar á rafmagni og hita.
Húsnæðisliðurinn vegur ríflega fjórðung af vísitölu neysluverðs og því hefur þróun hans mikil áhrif á verðbólguþróunina. Vægi reiknaðrar húsaleigu vegur rúman helming af húsnæðisliðnum og viðhald og viðgerðir fimmtung. Greidd húsaleiga og hiti og rafmagn vega svo sín hver 10% af húsnæðisliðnum.
Það sem af er ári hefur húsnæðisliðurinn einungis lækkað um 4,5% eða um 0,3% að meðaltali á mánuði, þrátt fyrir að vísitala íbúðaverðs, mæld af Fasteignaskrá Íslands hafi lækkað um tæp 9%. Talsverð hækkun á hinum liðum húsnæðisliðarins vega þar á móti. Þróun undirliðanna hefur því verið æði misjöfn frá áramótum og hefur reiknuð húsaleiga lækkað um 10,6% sem rímar vel við þróun vísitölu íbúðaverðs. Hinir undirliðirnir hafa hækkað um að 3,1 - 4,8% að undanskildum liðnum annað vegna húsnæðis sem hefur haldist óbreyttur frá áramótum.
Við spáum að reiknaða húsaleigan muni lækka lítillega á milli mánaða, en hinir munu hækka lítillega og að mestu leyti para hver annan út.
Horft fram á veginn
Seðlabankinn býst við því að verðbólgan hækki nokkuð á fyrsta ársfjórðungi næsta árs gangi spá okkar eftir, en fari svo nokkuð hratt lækkandi frá og með öðrum ársfjórðungi til loka árs 2010. Verður 12 mánaða verðbólgan komin niður undir verðbólgumarkmið Seðlabankans í lok næsta árs. Skattabreytingar ríkisstjórnarinnar sem taka munu gildi um áramótin munu hafa umtalsverð áhrif á verðþróunina í janúar, en ásamt þeim eru gjaldskrárhækkanir töluvert algengar í upphafi árs.“
Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum
Sífellt harðari gjaldeyrisreglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.