
Fordumboðið Brimborg og Íslensk NýOrka munu taka á móti tíu vetnisrafbílum af gerðinni Ford Focus FCV (Fuel Cell Vehicle) á mánudaginn. Bílarnir í síðustu viku. Fyrir eru á landinu tveir vetnisrafbílar, einn sömu gerðar og þeir sem eru að koma núna auk Ford Explorer FCV sem kom í vor. Með komu þessara bíla verður stærsti vetnisrafbílafloti Evrópu staðsettur á Íslandi og er meirihluti bílanna frá Ford, að því er fram kemur í tilkynningu.
Þar segir enn fremur:
„Þetta gerist á sama tímapunkti og fleiri þúsund manns hugsa um umhverfið í Kaupmannahöfn. Á meðan stígum við mikilvægt visthæft skref á Íslandi svo hægt verði að varðveita á morgun þau lífsgæði sem við njótum í dag.
Brimborg tók fyrsta visthæfa skrefið þegar umhverfisstefna fyrirtækisins var mótuð árið 1996 og allar götur síðan hefur fyrirtækið viljað vera leiðandi á Íslandi þegar kemur að bílum knúnum endurnýjanlegum orkugjöfum.
Framtíðin er því nær en flestir halda því rafvæðing samgangna liggur í loftinu eftir að tíu helstu bílaframleiðendur heims kynntu á haustmánuðum að vetnisrafbílar séu tæknilega tilbúnir og markaðshæfir.
Frá og með 2015 gera bílaframleiðendur ráð fyrir að nokkur hundruð þúsund vetnisrafbíla verði sett á markað og er sú þróun afar jákvæð fyrir Ísland, sérstaklega í ljósi þess að stærsti vetnisrafbílafloti Evrópu er nú á Íslandi.“
Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum
Sífellt harðari gjaldeyrisreglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.