
Hrein eign lífeyrissjóðanna til greiðslu lífeyris var 1.744 milljarðar króna í lok október og hafði aukist um 9,6 milljarða króna í mánuðinum skv. nýbirtum tölum Seðlabankans. Af einstökum eignaliðum munar þar mestu um 13,6 milljarða króna hækkun á íbúðabréfaeign sjóðanna sem gæti endurspeglað hækkun á verðlagi frá ágúst til september, lækkun á ávöxtunarkröfu verðtryggðra skuldabréfa hérlendis eða jafnvel kaup lífeyrissjóða á íbúðabréfum, að því er fram kemur hjá Greiningu Íslandsbanka.
„Hrein eign lífeyrissjóðanna í krónum talið er nú hægt og bítandi að nálgast það sem hún var fyrir hrun bankanna í fyrra. Þannig var hrein eign í lok október 26,7 mö.kr. minni en hún var í lok september í fyrra sem jafngildir um 1,5% lækkun að nafnvirði. Sé hins vegar tekið tillit til verðbólgu minnkaði hrein eign um 11% að raunvirði á tímabilinu. Þó ber að hafa í huga að enn eru ekki öll kurl komin til grafar varðandi endanlegt tap sjóðanna af fyrirtækjaskuldabréfum og fleiri eignum í kjölfar bankahrunsins. Liggur því nokkur óvissa um endanlegt mat á eignum lífeyrissjóðanna og ber þess vegna að taka mati á hreinni eign sjóðanna með fyrirvara.
Stærsta áfallið fyrir sjóðina síðastliðið haust var af innlendri hlutabréfaeign. Í lok september í fyrra áttu lífeyrissjóðirnir um 150,7 ma.kr. í innlendum hlutabréfum og hlutabréfasjóðum en mánuði síðar var sú eign komin niður í 41,6 ma.kr. Staða þeirra á innlendum hlutabréfamörkuðum er enn sáralítil og nú í lok október var eign sjóðanna í innlendum hlutabréfum og hlutabréfasjóðum 35,7 ma.kr. sem svarar til 2% af hreinni eign þeirra. Á hinn bóginn var vægi erlendra hlutabréfa og hlutabréfasjóða af hreinni eign í lok október hærra en það hefur verið að jafnaði, eða um 22,1%, sem nýtist þeim vel nú þegar vel árar á erlendum mörkuðum líkt og verið hefur á þessu ári,“ segir Greiningin enn fremur.
Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum
Sífellt harðari gjaldeyrisreglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.