
Samband ungra framsóknarmanna, SUF, vill að bankar og fjármálastofnanir verði gerð ábyrgari fyrir útlánastarfsemi sinni með því að veita heimilum heimild til að skila veðsettum eignum og að stofnaður verði uppboðsmarkaður um eignir bankanna, að því er fram kemur í tillögu sambandsins.
Þar segir enn fremur:
„Efnahagsnefnd Sambands ungra framsóknarmanna (SUF) leggur til að heimilum verði veitt heimild til að skila veðsettum fasteignum og bifreiðum, gegn greiðslu álags af höfuðstól skuldarinnar. Jafnframt að stofnaður verði gegnsær uppboðsmarkaður á forræði opinberra aðila, fyrir eignir banka og fjármálastofnana sem hafa verið yfirteknar eða skilað inn.
Með því að veita heimilum heimild til þess að skila inn veðsettum eignum eru bankar og fjármálastofnanir gerð ábyrgari fyrir útlánastarfsemi sinni. Samhliða fellur niður krafa á hendur skuldara. Þannig er komið til móts við hóp sem stjórnvöld hafa ekki sinnt, það er þá sem búa við neikvæða eiginfjárstöðu. Um leið er mótað áreiðanlegra og öruggara regluverk á fjármálamörkuðum til framtíðar. Að öllu óbreyttu stuðla stjórnvöld að veikingu innviða samfélagsins. Að missa hluta þjóðarinnar úr landi eða í gjaldþrot að óþörfu er það samfélagslega tap sem Íslendingar eiga enn eftir að verða fyrir. Áætlað er að um 8.000 heimili muni nýta sér úrræðið og kostnaður fjármálastofnana verði tæpir 37 milljarðar vegna innskilana.
Ljóst er að mikil tortryggni ríkir í þjóðfélaginu í dag varðandi starfsemi fjármálastofnana og hvernig farið er með þær eignir sem eru yfirteknar. Nauðsynlegt er fyrir uppbyggingu samfélagsins að allt ferli sé gert lýðræðislegt og gegnsætt þar sem allir eigi jafna möguleika til þátttöku.
Óháður og gegnsær uppboðsmarkaður fyrir eignir banka og fjármálastofnana sem hafa verið yfirteknar eða skilað inn yrði á forræði opinberra aðila og myndi auka trúverðugleika og traust á íslensku fjármálakerfi. Fjölskyldum yrði gert kleift að halda heimilum sínum með forleigurétt á skiluðum eignum, ef eignirnar seljast ekki á uppboðsmarkaði.“
Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum
Sífellt harðari gjaldeyrisreglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.