amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Mánudagurinn 20. maí 2013 - 04:57
 
Frétt birtist 27. nóvember 2009 klukkan 07:38

Sjómannaafslátturinn afnuminn í áföngum

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Calum Davidson

Fjármálaráðherra leggur til í nýju frumvarpi um tekjuöflun ríkisins að sjómannaafslátturinn verði látinn fjara út á fjórum árum frá og með tekjuárinu 2011.

Hann lækki því um 25% af því sem hann er nú á hverju áranna 2011–2013.

Í greinargerð með frumvarpinu segir að afslátturinn hafi lengi verið umdeildur og gagnrýni á hann aukist á undanförnum árum af ýmsum ástæðum:

„Forsendur fyrir honum hafa breyst mjög frá því sem upphaflega var og erfitt að rökstyðja hann gagnvart ýmsum hópum sem að einhverju leyti eru í sambærilegri stöðu eða starfa við sambærilegar aðstæður. Þá hafa vaknað spurningar um sjómannaafsláttinn með tilliti til samkeppnisstöðu og ríkisaðstoðar við atvinnurekstur.“

Bent er á að rökin fyrir sjómannaafslættinum á sínum tíma hafi meðal annars verið langar fjarvistir frá heimili, slæmar vinnuaðstæður og þörf á sérstökum vinnufatnaði. Öll þessi atriði hafa breyst eða dregið hefur úr gildi þeirra í samanburði við aðra launþega:

„Stór hluti þeirra sem nú fá afsláttinn stunda vinnu fjarri heimili sínu en hið sama gildir um fjölda starfsstétta án þess að það sé bætt með skattfé. Vinnuaðstæður hafa gjörbreyst frá því sem áður tíðkaðist og eru í engu líkar því sem áður tíðkaðist auk þess sem hlífðarfatnaður er lagður til af vinnuveitanda.

Sjómannaafsláttur hefur á stundum tengst kjaramálum sjómanna og hefur verið til hans litið við ákvörðun á kjörum þeirra. Slík afskipti ríkisins af kjörum einstakra starfsstétta heyra nú sögunni til og er eðlilegt að þau ráðist í samskiptum launþega og vinnuveitenda. Þá er eðlilegt að hver atvinnugrein beri launakostnað af starfseminni þar sem annað veldur misræmi á kostnaði og óhagkvæmni. Þá er ekki hægt að líta fram hjá því að þær starfsstéttir sem njóta mests af afslættinum eru meðal þeirra best launuðu á sjó og landi. Hluti af þeim störfum sem nú eru unnin á sjó (á frystitogurum o.fl.) voru áður unnin í landi án þess að því fylgdi nokkur skattaívilnun. Sambærileg störf eru einnig unnin í landi og felst því mismunun í sjómannaafslættinum milli fólks eftir vinnustað.“

Nú eru um sex þúsund manns sem njóta sjómannaafsláttar og hefur þeim farið fækkandi frá því núverandi kerfi var tekið upp en um 10.000 manns fengu sjómannaafslátt á fyrstu árum tíunda áratugarins. Laun þeirra sem fá sjómannaafslátt hafa á síðustu árum hækkað verulega í samanburði við almenna þróun launa. Bent er á í greinargerðinni að samkvæmt skattframtölum hækkuðu meðallaun þeirra sem fengu sjómannaafslátt um tæp 55% frá 2006 til 2008 en þeim sem afsláttinn fengu fækkaði um nærri 15%. Á sama tíma hækkuðu meðallaun framteljenda almennt um tæplega 30%. Hækkun þessi skýrist að hluta af gengisþróun sem hafði jákvæð áhrif á laun sjómanna og má því reikna með að hún hafi haldið áfram fram á þetta ár og verði viðvarandi:

„Sjómenn eru meðal fámennra hópa sem fengið hafa verulegar kjarabætur í kreppunni sem er að ganga yfir og útgerðin er meðal þeirra atvinnugreina þar sem gengisfall krónunnar styrkir rekstrargrundvöllinn og fiskverð hefur verið hagstætt á mörkuðum. Almennur hljómgrunnur er fyrir því að skattkerfið stuðli að jöfnuði og þegar nauðsynlegt er að hækka skatttekjur er eðlilegt að byrja á að fella brott ívilnanir sem fela í sér mismunun.“

Tengt efni

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2013 - - RSS - Um AMX