amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Föstudagurinn 12. mars 2010 - 02:36
 
Frétt birtist 26. nóvember 2009 klukkan 11:14

For­stjóri Nýherja: Bankarnir halda þrotafyrirækjum í samkeppni við þau rekstrarhæfu

 
 
 
 
Eftir Einar Kristinn Guðfinnsson Pistill

Aldrei brugðist vondum málstað

Þórólfur Matthíasson prófessor kvartar undan því að vera sagður ganga erinda erlendra þjóða. Þarna er prófessorinn að vísa til þess að Eva Joly ráðgjafi sérstaks saksóknara í bankahruninu skrifaði harðorða grein í Morgunblaðið og Aftenposten í Noregi til þess að svara dæmalaust vitlausri grein eftir prófessorinn í síðar­nefnda blaðinu.

 
Mest lesið
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Nýherji
Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja.

Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja, gagnrýndi bankana á fundi Viðskiptaráðs í morgun fyrir að taka yfir fyrirtæki sem væru komin í greiðsluþrot og halda rekstri þeirra áfram í samkeppni við þau fyrirtæki sem enn séu rekstrarhæf. Hann nefndi, að sögn mbl.is, Teymi sem dæmi um fyrirtæki sem fyrir löngu hefði átt að vera gjaldþrota en hefði verið haldið á lífi þar sem eigendur hefðu einnig verið stórir bankaeigendur.

Í frétt mbl.is segir m.a.:

„Eftir hrun hafa margir einstakir markaðir á Íslandi skroppið saman með þeim afleiðingum að pláss er fyrir færri fyrirtæki á þessum mörkuðum. Því ættu, undir eðlilegum kringumstæðum, þau fyrirtæki að hverfa á braut sem verst hafa verið rekin eða standa höllum fæti af öðrum orsökum. Kom þetta fram í máli Þórðar Sverrissonar, forstjóra Nýherja, á fundi Viðskiptaráðs í dag.

Hann segir hins vegar að of oft séu slík fyrirtæki tekin yfir af bönkunum. Segir hann að fyrirtæki sem komin séu í greiðsluþrot eigi annað hvort að setja í gjaldþrot eða selja strax. Ekki sé heppilegt að bankar taki yfir meirihluta hlutafjár og haldi rekstri fyrirtækjanna áfram í samkeppni við þau fyrirtæki sem enn séu rekstrarhæf.

Sagði hann að í sumum tilfellum, eins og í dæmi Teymis, væri um að ræða fyrirtæki sem fyrir löngu hefðu átt að vera gjaldþrota en hefði verið haldið á lífi þar sem eigendur þeirra hefðu einnig verið stórir eigendur í bönkunum. Skjóti því skökku við að þessi sömu fyrirtæki séu nú aftur með bankana sem bakhjarla í samkeppni við önnur fyrirtæki.

Sagði hann að það sjónarmið að hámarka eigi verðmæti í þágu bankanna. Ættu bankarnir ekki að taka afleiðingum ákvarðana sinna eins og aðrir? Þá spurði hann hvort raunhæft væri að bankinn gæti rekið fyrirtæki betur en fyrri eigendur þeirra.“

Í fréttinni er einnig vísað til framsöguræðu Ásmundar Stefánssonar, bankastjóra Landsbankans, sem sagði að við meðferð á þeim fyrirtækjum sem féllu í fang bankanna þyrfti að horfa til fleiri þátta. Til dæmis hvaða áhrif það hefði á atvinnustig í landinu ef fyrirtæki væru gerð gjaldþrota.

Þá er þess getið að Þorsteinn Þorsteinsson, stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins, hafi stuttlega vikið að þessu í sínu erindi og sagt að ekki mætti rugla saman bankakerfinu og félagslega kerfinu, þótt ríkið ætti bankana tímabundið.

 
Fleiri fréttir

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Jónas Fr. vísar ásökunum um lygar starfsmanna FME á bug

Starfsmenn Fjármála­eftirlitins gáfu þær upplýsingar um fjárhag Landsbankans sem þeir töldu réttar hverju sinni byggðar á fyrirliggjandi gögnum frá bankanum og hálfsársuppgjöri 2008, árituðu af endurskoðendum bankans. Ásökunum um lygar starfsmanna Fjármála­eftirlitsins er vísað á bug, segir í yfirlýsingu Jónasar Fr. Jónssonar, fv. for­stjóra Fjármála­eftirlitsins.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2010 Straumröst ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX